Þórður í dag er þýður
þónokkuð eldri en í gær
blátt-áfram ljúfur og blíður
blikkar hann skvísurnar þær
Ötull þó tuttugu átján
ætið svo léttur í lund
situr og hugsar ,, er sautján
seint mun gleymast sú stund
Hann bílum í einatt oft hugsar
hann breytir að alvöru sið
slórar ei aldrei þar slugsar
slær okkur flestum þar við
Gratúlerar





