Ég veit að það er langt í næsta sumar og menn eru kannski ennþá með bílana sína hálf-kláraða í skúrnum. Þar á meðal ég
Ég er með smá "kontakt" hjá Norrænu í Færeyjum og hef í gegnum tíðana fengið mikið ódýrari pakka hjá þeim en ég gæti nokkurn tímann fengið hjá söluskrifstofunni heima. Þórður var svo djöfull góður að pósta Nurburgring dagatalinu og hans þekking á svæðinu er gulls virði, tel auk þess líklegt að Sveinbjörn hafi nokkra góða punkta í pokanum.
Ég veit fullkomnlega að áhuginn er til staðar og að margir munu sýna þessu rosalega mikinn áhuga. Ég veit líka að áhuginn dofnar og margir gefa skít í þetta þegar nær dregur. Ég er hins vegar 100% viss um það má forðast brottfall úr röðum áhugasamra með því að gera þetta á concrete hátt.
Mín reynsla af svona hópferðum er takmörkuð, ég viðurkenni það fúslega
Kv. Jón Freyr




