by bebecar » Tue 25. Nov 2008 07:40
Þú mátt vinna og búa hvar sem þú vilt. Engin sem getur eða má stoppa þig í því innan EU.
Danirnir eru samt lúnknir við að ná sér í skatta af fólki sem er búsett utan DK en hefur vinnu eða aðrar skyldur í DK.
Eins gætir þú þurft að tryggja þig sérstaklega í Danska velferðarkerfinu ef vinnuveitandinn býður ekki upp á það (t.d. fyrir vinnuslysum). Þú getur reyndar fengið þjónustuna í DK ef eitthvað kemur fyrir en þyrftir að punga út fyrir því og svo fá endurgreitt í DE.
Minnir að þetta sé svona - er dálítið langt síðan ég tékkaði á þessu.
PS, Flensborg er huggulegur staður og vel í sveit sett. Það er talsvert af vinnu að hafa þarna á Suður-Jótlandi í iðnaði og hvers kyns tækni.
Vonandi hjálpar þetta eitthvað en þú ættir að double tékka þetta því ég er ekki með þetta á hreinu - þetta er bara eitthvað sem mig rámar í frá því að ég tékkaði á sömu hlutum fyrir nokkrum árum síðan.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road