Kíktu í kafla XI almennra hegningalaga. Þar er fjallað um fyrningu sakar, brottfall viðurlaga og uppreist æru.
IX. kafli. [Fyrning sakar, brottfall viðurlaga og uppreist æru.]1)
1)L. 20/1981, 3. gr.
80. gr. [Sakir fyrnast samkvæmt ákvæðum 81. og 82. gr. Á það einnig við um brot samkvæmt sérrefsilögum, nema þar sé annan veg mælt.]1)
1)L. 20/1981, 4. gr.
81. gr. [Sök fyrnist á þeim tíma, er hér segir:
1. Á 2 árum, þegar ekki liggur þyngri refsing við broti en 1 árs fangelsi eða refsing sú, sem til er unnið, fer ekki fram úr sektum.
2. Á 5 árum, þegar ekki liggur þyngri refsing við broti en 4 ára fangelsi.
3. Á 10 árum, þegar ekki liggur þyngri refsing við broti en 10 ára fangelsi.
4. [Á 15 árum, þegar þyngsta refsing við broti er meira en 10 ára tímabundið fangelsi.]1)
[Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. fyrnist sök vegna brota samkvæmt ákvæðum 194. gr., 1. mgr. 200. gr. og 1. mgr. 201. gr. ekki þegar brot er framið gagnvart barni undir 18 ára aldri.]2)
[Fyrningarfrestur vegna brota, sem fólgin eru í því að komast undan greiðslu á tollum, sköttum eða öðrum gjöldum til hins opinbera, er aldrei skemmri en 5 ár.]1)
Nú gerist maður sekur um háttsemi, sem varðar við fleiri en eitt refsiákvæði, og skal þá miða fyrningarfrest brotanna við það ákvæði, er geymir þyngst refsimörk.]3)
217. gr. [Hver, sem gerist sekur um líkamsárás, enda sé hún ekki svo mikil sem í 218. gr. segir, skal sæta sektum eða [fangelsi allt að 6 mánuðum],1) en fangelsi allt að 1 ári, ef háttsemin er sérstaklega vítaverð.
Málssókn er opinber út af broti samkvæmt 1. mgr., og skal mál eigi höfðað nema almenningshagsmunir krefjist þess.]2)
1)L. 82/1998, 110. gr. 2)L. 20/1981, 10. gr.
218. gr. [Hafi maður með vísvitandi líkamsárás valdið öðrum manni tjóni á líkama eða heilbrigði, og þessar afleiðingar árásarinnar verða taldar honum til sakar vegna ásetnings eða gáleysis, þá varðar það …1) fangelsi allt að 3 árum, eða sektum, ef sérstakar málsbætur eru.
Nú hlýst stórfellt líkams- eða heilsutjón af árás eða brot er sérstaklega hættulegt vegna þeirrar aðferðar, þ. á m. tækja, sem notuð eru, svo og þegar sá, er sætir líkamsárás, hlýtur bana af atlögu, og varðar brot þá fangelsi allt að 16 árum.]2)
_________________ Saxi
|