Ég sá þetta í bílablaði Moggans í gær, þar segir að næsti þristu (flaggskipið) verði fáanlegt með 4.5 lítra V8 vél - það ætti nú að duga til að drepa í samkeppninni. Hvernig ætli næsta kynslóð af Hartge og Alpina bílum verði þá?
Hefur einhver heyrt þetta víðar, mér finnst þetta hljóma dálítið hæpið þó þristurinn fari stækkandi, svo verður M bíllinn líklega M4, sem gefur til kynna að M6 muni líka líta dagsins ljós...


