Útflutningur á fólksbílum

Hér skal spjalla um BMW.

Útflutningur á fólksbílum

Postby arnibjorn » Thu 20. Nov 2008 16:51

Sælir spjallverjar,

Vildi bara benda ykkur á þetta, gæti komið einhverjum að notum sem eru að íhuga bílaútflutning :)

http://www.samskip.is/flutningathjonust ... olksbilar/

Samskip wrote:Útflutningur notaðra fólksbíla frá Íslandi
Allir fólksbílar eru lestaðir í gáma og fluttir þannig til Evrópu. Skip Samskipa (Arnarfell og Helgafell) sigla frá Reykjavík á fimmtudagskvöldum. Hver ferð tekur um tvær vikur. Skipin koma til Immingham á Bretlandi á mánudögum, Rotterdam í Hollandi á þriðjudögum, Cuxhaven í Þýskalandi á miðvikudögum, Varberg í Svíþjóð á fimmtudögum og til Árósa í Danmörku á föstudögum.

Móttaka ökutækja, bókun í skip og geymsla í útflutningshöfn
Áður en ökutæki er afhent Samskipum til útflutnings þarf sendandi að vera búinn að hafa samband við skrifstofu Samskipa og fá verðtilboð í viðkomandi flutning. Einnig þarf sendandi að bóka ökutækið í skip og afhenda nauðsynleg gögn til að hægt sé að flytja ökutækið.

Eins og fyrr segir siglir skip á fimmtudagskvöldi frá Reykjavík. Samskip taka við fólksbílum á föstudögum, mánudögum og þriðjudögum.

Sendandi þarf að afhenda eftirfarandi:
- Afrit af sölureikningi í þeim tilfellum þegar verið er að selja viðkomandi ökutæki. Sölureikningur þarf að innihalda eftirfarandi upplýsingar; bíltegund og undirgerð, skráningarnúmer, verksmiðjunúmer bifreiðar og árgerð.
- Skráningarskírteini bifreiðar. Ef umráðamaður er annar en skráður eigandi þarf sendandi að afhenda skriflegt útflutningsleyfi frá eiganda.
- Ef veðbönd hvíla á ökutæki þarf sendandi að afhenda veðbókarvottorð og skriflega yfirlýsingu veðeiganda um að flytja megi viðkomandi ökutæki úr landi.
- “Græna kortið” alþjóðlegt tryggingarskírteini. Sendandi þarf að útvega þetta skírteini frá tryggingafélagi sínu.

Sendandi er ábyrgur fyrir að afskrá ökutæki hjá Umferðarstofu.

Þegar ökutækið hefur verið bókað í skip og nauðsynleg gögn hafa verið afhent fær sendandi upplýsingar um hvar afhenda á ökutæki til lestunar í gám.

Ekki er leyfilegt að afhenda ökutæki til flutnings og hafa einhverskonar farm í ökutækinu, svo sem búslóð, föt, verkfæri o.fl. Ef gera á slíkt þarf allt sem í bílnum er að koma fram á farmbréfi og tollast sérstaklega. Slíkt er ávallt á ábyrgð sendanda.

Ekki er mögulegt fyrir sendanda að ferðast með skipunum til áfangastaða.

Tollafgreiðsla
Samskip (Jónar Transport) annast útflutningsskjalagerð fyrir sendanda. Einnig er mögulegt að fá útgefið EUR-1 skírteini í þeim tilfellum sem þess er þörf. Sendandi er ábyrgur fyrir að afhenda öll gögn sem til þarf til þess að hægt sé að tollafgreiða.

Bifreið er ekki flutt úr landi fyrr en útflutningsheimild er veitt frá tolli.

Lestun, sjóbúnaður og tryggingar
Samskip geta flutt allar þær fólksbifreiðar sem hægt er að lesta í gáma. Bifreið er ekið inn í gáminn, tvær bifreiðar í 40 feta gám. Bifreiðarnar eru beislaðir niður með sérstökum bílaströppum og því næst er gámurinn hífður um borð.

Í flutningsgjöldunum er ekki innifalin trygging sem ábyrgist tjón í flutningi. Sendandi þarf sjálfur að kaupa tryggingu fyrir flutninginn. Þjónustudeild Samskipa getur aðstoðað við kaup á tryggingum.

Uppskipun og afgreiðsla í erlendri höfn
Erlendar skrifstofur Samskipa munu sjá um tollafgreiðslu bifreiða í erlendri höfn. Að tollafgreiðslu lokinni er bifreiðin tilbúin til afhendingar. Bifreið er geymd í vöruhúsi eða á plani þar til móttakandi sækir bifreiðina. Ef móttakandi sækir ekki bifreið á tilsettum tíma munu falla geymslugjöld á viðkomandi bifreið.

Greiðslufyrirkomulag
Greiða þarf fyrir flutning við afhendingu bifreiðar til Samskipa.


--------------------------------------------------------------------------------
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Postby JonHrafn » Fri 21. Nov 2008 20:43

Loksins komnar tölur um hvað ríkið er tilbúið að endurgreiða af vsk og tolli.

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/11/21/5000_bilar_ur_landi/

Besta mál að mínu mati í ljósi gjaldeyristekna og ekki er nú beint vöntun á notuðum bílum á klakanum.
JonHrafn
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1210
Joined: Mon 17. Feb 2003 11:51
Location: Keflavík south

Postby arnibjorn » Mon 22. Dec 2008 09:47

http://www.tollur.is/displayer.asp?cat_id=2502

Þetta getur kannski hjálpað einhverjum :)
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Postby zazou » Tue 23. Dec 2008 11:22

Til gamans má geta að til að fá töluna sem yrði endurgreidd þarf að fylla út form E-31 og senda Mr Tollz.
Brynjar
Alfa Romeo 159

Gamalt:
Jaguar XJ8
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign

Vísitölubílar eru SATANS
User avatar
zazou
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2610
Joined: Sat 01. Nov 2003 13:43
Location: London


Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 27 guests