bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Thu 19. Jun 2025 23:31

All times are UTC

Post new topic Reply to topic  [ 29 posts ]  Go to page 1, 2  Next
Author Message
 Post subject: lán IMF, ógnin
PostPosted: Thu 20. Nov 2008 18:16 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
maður er búin að vera lesa hversu meingölluð stefna stjórnvalda/seðlabankans er varðandi lánsféið sem við erum að fá.

svo virðist að þeir ætli að reyna nota þennan pening í að laga gengi krónunar,
hverjir hérna, eru eins og ég, hreint ekki á sama um þetta? og eru hræddir við að þetta risalán eigi eftir að brenna upp í bókstaflega glataðar björgunaraðgerðir?

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: lán IMF, ógnin
PostPosted: Thu 20. Nov 2008 20:16 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Wed 07. Jun 2006 18:28
Posts: 1348
íbbi_ wrote:
maður er búin að vera lesa hversu meingölluð stefna stjórnvalda/seðlabankans er varðandi lánsféið sem við erum að fá.

svo virðist að þeir ætli að reyna nota þennan pening í að laga gengi krónunar,
hverjir hérna, eru eins og ég, hreint ekki á sama um þetta? og eru hræddir við að þetta risalán eigi eftir að brenna upp í bókstaflega glataðar björgunaraðgerðir?

*réttupphönd*

_________________
það er betra að spyrja og vera heimskur í eina mínútu en að þegja og vera heimskur alla ævi

óstaðsettur í bíl

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 20. Nov 2008 21:59 
Offline
Rallýbílstjóri
User avatar

Joined: Mon 18. Apr 2005 23:22
Posts: 1445
Location: Reykjavík
samkvæmt haarde er þetta varasjóður, verður ekki notaður í björgunar aðgerðir ..

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 20. Nov 2008 22:48 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 01. Nov 2003 13:43
Posts: 2610
Location: London
Ég óttast það að þetta RISA lán verði notað til að niðurgreiða gjaldeyri fyrir þá sem ætla að flytja fé úr landi þegar gengið verður sett á flot.
Á mannamáli: 'verja' krónuna á meðan hún er í falli sem einmitt er út af því að fjárfestar selja krónu og vilja kaupa gjaldreyri.

Ef það gerist (ég er ekkert ógurlega svartsýnn á það), þá mun það vera þjóðin sem fær að reikninginn fyrir fjárfestana og því MASSÍF tilfærsla eigna og algert arðrán. Sem gæti reyndar verið tilgangur IMF ef maður er í samsæriskenningarliðinu...

Ég vona að peningarnir verði á einhvern hátt notaðir til að halda lífi í (erlent)skuldsettum fyrirtækjum og einstaklingum (þó í hófi) þar til gengið jafnar sig.

_________________
Brynjar
Alfa Romeo 159

Gamalt:
Jaguar XJ8
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign

Vísitölubílar eru SATANS

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 21. Nov 2008 01:45 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
zazou wrote:
Ég óttast það að þetta RISA lán verði notað til að niðurgreiða gjaldeyri fyrir þá sem ætla að flytja fé úr landi þegar gengið verður sett á flot.
Á mannamáli: 'verja' krónuna á meðan hún er í falli sem einmitt er út af því að fjárfestar selja krónu og vilja kaupa gjaldreyri.

Ef það gerist (ég er ekkert ógurlega svartsýnn á það), þá mun það vera þjóðin sem fær að reikninginn fyrir fjárfestana og því MASSÍF tilfærsla eigna og algert arðrán. Sem gæti reyndar verið tilgangur IMF ef maður er í samsæriskenningarliðinu...

Ég vona að peningarnir verði á einhvern hátt notaðir til að halda lífi í (erlent)skuldsettum fyrirtækjum og einstaklingum (þó í hófi) þar til gengið jafnar sig.

BINGÓ!! vel orðað.

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 21. Nov 2008 18:07 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
Afsakið......

Þið Ívar og Brynjar !!!!!!

þið hafið farið miklum drjúgum orðum um ástand þjóðfélagsins,

eitt sem ég rak hælin í ....... í minni mínu

þið voruð báðir stórþátttakendur í miklum neyslu-lánum v/bílaeign

afhverju eruð þið svona hræddir við stöðu mála eins og hún hefur þróast

((((( spyr af forvitni ,, engu öðru ,,,,,, ekkert diss eins og aðrir póstar frá mér í öðrum þráðum eru teknir hjá nokkrum spjallverjum :x )))))

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML

(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 21. Nov 2008 18:30 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Sun 28. Mar 2004 23:48
Posts: 405
siggik1 wrote:
samkvæmt haarde er þetta varasjóður, verður ekki notaður í björgunar aðgerðir ..

Quote:
Ennfremur segir í tilkynningu forsætisráðuneytisins:

Fjármunirnir sem fást fyrir tilstilli Alþjóðagjaldeyrissjóðsins verða notaðir til að styrkja krónuna og verður hún sett á flot um leið og stuðningur við hana verður talinn nægilegur til þess. Þess er að vænta að gjaldeyrisviðskipti færist þá fljótlega í eðlilegt horf og milliríkjaviðskipti fari að ganga hnökralaust fyrir sig. Ríkisstjórn Íslands fagnar niðurstöðu stjórnar sjóðsins.

Quote:
Í fréttatilkynningu IMF (IMF Executive Board Approves US$2.1 Billion Stand-By Arrangement for Iceland, Press Release No.08/296, November 19, 2008) segir m.a.:

„Iceland’s economic program envisages that the Fund’s Stand-By Arrangement will fill about 42 percent of the country’s 2008-2010 financing gap. The remainder will be met by official bilateral creditors.”

Hugtakið „financing gap” (fjármögnunarþörf) vísar hér til greiðsluskuldbindinga Íslands umfram eigið afla- og ráðstöfunarfé á tímabilinu 2008-2010.

Í fréttatilkynningu forsætisráðuneytisins í dag segir hins vegar:

„Fjármunirnir sem fást fyrir tilstilli Alþjóðagjaldeyrissjóðsins verða notaðir til að styrkja krónuna og verður hún sett á flot um leið og stuðningur við hana verður talinn nægilegur til þess.”

Með orðalagi IMF hefði fyrri hluti setningarinnar verið sem hér segir:

„Fjármunirnir sem fást fyrir tilstilli Alþjóðagjaldeyrissjóðsins verða notaðir til að mæta 42% af fjármögnunarþörf Íslands á tímabilinu 2008-2010.”

Að styrkja krónuna er eitt – að fjármagna greiðsluhalla Íslands er annað.

Eitthvað eru þetta misvísandi skilaboð.

En ef það á að nota nokkur hundruð milljarða af lánsfénu í að lappa upp á krónuna þá getum við byrjað að pakka niður...

Það yrði hrikalegt ef að þau mistök yrðu gerð að ausa erlendu lánsfé í að styrkja krónuna.
Það verður einfaldlega að leyfa henni að falla fyrst um sinn.
Það er skárra en að sitja kannski uppi með verðlitla krónu og haug af erlendum skuldum. Við skulum vona að þau mistök verði ekki gerð.
En því miður þá býst maður við hverju sem er af núverandi ráðamönnum.

Hér er síðan frétt sem ég rakst á:
Quote:
Poul Thomsen, aðstoðarforstjóri Evrópudeildar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF), segir að flot krónunnar gæti skapað öldu af gjaldþrotum fyrirtækja og heimila, það er þeirra sem eru með mikið af lánum í erlendum myntum.

Þetta kom fram á símafundi Thomsen með íslenskum fréttamönnum í dag. Thomsen segir að til lengri tíma litið muni krónan ná stöðugleika í kringum núverandi gengi Seðlabankans eða að evran muni kosta um 177 krónur þegar fram í sækir.

Af öðrum punktum sem fram komu á fundinum má nefna að lántökukostnaður íslenska ríkisins vegna 2,1 milljarða dollara lánsins frá IMF er rúmlega fjögur prósent af upphæðinni eða rúmlega 11 milljarðar króna.

Thomsen neitaði því að frestun á afgreiðslu lánsins hjá IMF væri vegna andstöðu Breta og Hollendinga. Það væri misskilningur. Frestunin væri einfaldlega til komin vegna þess að heildarpakki hefði ekki fyrir, það er ekki hafði tekist að ná saman þeirri lágmarksupphæð sem þurfi (5 milljörðum dollara). „Við gátum ekki farið af stað með áætlun okkar fyrir þetta lá ljóst fyrir," segir Thomsen.

Hvað varðar stýrivextina segir Thomsen að því fyrr sem stöðugleiki komist á með gengi krónunnar því fyrr muni verða hægt að lækka stýrivextina.

Aðspurður um þá óvissu sem er í spá IMF hvað varðar framtíðina í fjármálalífi landsins segir Thomsen að enn sé engin efnahagsreikningur til staðar fyrir nýju bankana og slíkt geri mjög erfitt að spá fyrir um framvinduna.

Þarna er maður frá IMF að segja að stöðugleiki náist við gengið EUR=177 ISK. :shock:
Þó að krónan eigi líklegast eftir að hrynja þegar hún verður sett á flot þá skulum við samt vona að stöðugleiki náist við eitthvað sterkara gengi en evran á 177 íslenkar krónur, hvenær svo sem þessi stöðugleiki á að nást...

_________________
BMW E34 525iA '95

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 21. Nov 2008 18:54 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 01. Nov 2003 13:43
Posts: 2610
Location: London
Alpina wrote:
Afsakið......

Þið Ívar og Brynjar !!!!!!

þið hafið farið miklum drjúgum orðum um ástand þjóðfélagsins,

eitt sem ég rak hælin í ....... í minni mínu

þið voruð báðir stórþátttakendur í miklum neyslu-lánum v/bílaeign

afhverju eruð þið svona hræddir við stöðu mála eins og hún hefur þróast

((((( spyr af forvitni ,, engu öðru ,,,,,, ekkert diss eins og aðrir póstar frá mér í öðrum þráðum eru teknir hjá nokkrum spjallverjum :x )))))

Jú ég tók þátt í fylleríinu og það var gaman, hef ég í nokkrum þræði kvartað persónulega yfir minni stöðu. Ég horfi hins vegar nokkur ár fram í tíman og óttast það ástand sem mun skapast ef að þeim sem draga vagnin hér verða lagðar of þungar byrðir á herðar svo þeir kjósi að flytja sig um set og byrja líf annars staðar. Í hvers konar skít er þjóðin þá?
Líkjum þessu við hjónaband, ekki vinna krakkarnir, konan vinnur hálfan dagin á meðan karlin er brauðfæðandinn. Konan og krakkarnir spreða og spreða þar til karlinn tekur sig upp og skilur bara við kerlu þegar hann sér öll neyslulánin sem hún er búin að taka. Í hvers konar málum eru þau sem eftir sitja þá?

Fyrir mína parta þá mundi ég segja... heyrðu, ég á bara ekkert í þessum krökkum, adios væna :!:

En ég endurtek, það yrði skelfilegt ef lánið yrði notað til niðurgreiðslu gjaldeyris ('verja krónuna'), þá er það bara eignaupptaka #2 hjá þjóðinni. #1 var þegar krónan var felld kerfisbundið af landráðamönnunum.

_________________
Brynjar
Alfa Romeo 159

Gamalt:
Jaguar XJ8
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign

Vísitölubílar eru SATANS

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 21. Nov 2008 19:15 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Fri 25. Apr 2003 07:11
Posts: 2674
Location: Reykjavík
Brynjar og þið sem þekkið vel til.

Er einhver von á að stýrivextirnir lækki fljótlega? Manni finnst sú aðferð ekkert eiga við í tilviki Skersins.

_________________
1990 Benz 250D W124

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 21. Nov 2008 19:43 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Sun 02. Feb 2003 14:43
Posts: 1420
Location: Omnom nom nom
Stofnuðu ekki örugglega allir gjaldeyrisreikningar þegar að það var í boði?

Ég veit allavegna um nokkra(ásamt mér) sem getur ekki beðið eftir... "flotinu" :)

Það verður haldin táknræn flotvaka við tjörnina þegar að krónan verður sett á flot, en þá verður einni krónu sökkt í tjörninni :lol:

Vonandi rætast spár danskra hagfræðinga til skammstíma að evran fari í c.a. 250kr í skammann tíma og menn fái smá gróða..

Alltaf að hugsa um eigin skinn ;)

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 21. Nov 2008 19:49 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 04. Nov 2005 13:10
Posts: 3836
Location: Vík í Mýrdal
Jónas wrote:

Það er einmitt útaf því sem landið fór á hausinn...

Það hugsa allir um sitt eigið rassgat!......

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 21. Nov 2008 19:56 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Posts: 11549
Location: Reykjavík
Steini B wrote:
Jónas wrote:
Stofnuðu ekki örugglega allir gjaldeyrisreikningar þegar að það var í boði?

Ég veit allavegna um nokkra(ásamt mér) sem getur ekki beðið eftir... "flotinu" :)

Það verður haldin táknræn flotvaka við tjörnina þegar að krónan verður sett á flot, en þá verður einni krónu sökkt í tjörninni :lol:

Vonandi rætast spár danskra hagfræðinga til skammstíma að evran fari í c.a. 250kr í skammann tíma og menn fái smá gróða..

Alltaf að hugsa um eigin skinn ;)

Það er einmitt útaf því sem landið fór á hausinn...

Það hugsa allir um sitt eigið rassgat!......

Og ætlaru að segja mer að þu gerir það ekki sjalfur ?

_________________
Image
BMW E30 328i Coupe

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 21. Nov 2008 20:12 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 04. Nov 2005 13:10
Posts: 3836
Location: Vík í Mýrdal
gunnar wrote:
Steini B wrote:
Jónas wrote:
Stofnuðu ekki örugglega allir gjaldeyrisreikningar þegar að það var í boði?

Ég veit allavegna um nokkra(ásamt mér) sem getur ekki beðið eftir... "flotinu" :)

Það verður haldin táknræn flotvaka við tjörnina þegar að krónan verður sett á flot, en þá verður einni krónu sökkt í tjörninni :lol:

Vonandi rætast spár danskra hagfræðinga til skammstíma að evran fari í c.a. 250kr í skammann tíma og menn fái smá gróða..

Alltaf að hugsa um eigin skinn ;)

Það er einmitt útaf því sem landið fór á hausinn...

Það hugsa allir um sitt eigið rassgat!......

Og ætlaru að segja mer að þu gerir það ekki sjalfur ?

Nei, það geri ég ekki...
Maður auðvitað reynir að spara meira
EN ég held samt áfram að versla bara til þess að hjálpa til að halda öllu gangandi...

En ég er ekki að fara að leika með krónuna og reyna að græða á henni, það gerir bara illt verra...

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 21. Nov 2008 20:36 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Ef að landráðamennirnir enda í fangelsi þá eigum við okkur viðreisnar von. Það er eina tryggingin fyrir því að þeir steli ekki peningunum aftur og eina svarið við hrópum þjóðarinnar eftir réttlæti. Kannski meira en það, þeir í fangelsi er ein helsta von okkar um uppreisn æru erlendis!

Ég efa það ekki að krónan á eftir að taka vænan skell núna. Hinsvegar þá finnst mér einhvern veginn hæpið að hún fari enn neðar en það gengi sem var á henni hjá t.d. seðlabankanum í Evrópu. Var ekki evran í um 250 kalli þar þegar verst lét?

Ég er nú einn af þeim sem bý úti og langar nú samt heim, þrátt fyrir þetta ástand. Ég sé nokkra plúsa við þessar aðstæður sem verða, t.d. upp úr næsta hausti því í öðrum löndum sem hafa farið í gegnum sama pakka hefur orðið mikil endurnýjun í fyrirtækjum og mikil uppbygging nýrra fyrirtækja sem áður voru bara blokkeruð út af markaðnum. Það skapast tækifæri fyrir ný fyrirtæki á markaði og loksins verður skynsamlegur rekstrargrundvöllur fyrir fyrirtæki þegar jafnvægi verður náð, laun lægri og húsaleiga og annar rekstrarkostnaður mun lægri en var hér áður.

Þekki einn sem fékk lækkaða húsaleigu í síðasta mánuði úr 1.1 milljón niður í 600 þús. Ekki slæmt það.

Hinsvegar, þá væri eiginlega út í hött að nýta sér ekki gengisfallið með því að vinna hérna úti í eins og eitt ár á borga niður íbúðarlán t.d. eða kaupa sér eignir á Íslandi á 60-70% afslætti í raun.

Maður er bara ekkert viss um að það verði neina vinnu að hafa hér því útlitið er ekki beint bjart eins og er og það þó maður myndi leita almennt innan EU.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 21. Nov 2008 20:54 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Sun 02. Feb 2003 14:43
Posts: 1420
Location: Omnom nom nom
Steini B wrote:
Jónas wrote:
Stofnuðu ekki örugglega allir gjaldeyrisreikningar þegar að það var í boði?

Ég veit allavegna um nokkra(ásamt mér) sem getur ekki beðið eftir... "flotinu" :)

Það verður haldin táknræn flotvaka við tjörnina þegar að krónan verður sett á flot, en þá verður einni krónu sökkt í tjörninni :lol:

Vonandi rætast spár danskra hagfræðinga til skammstíma að evran fari í c.a. 250kr í skammann tíma og menn fái smá gróða..

Alltaf að hugsa um eigin skinn ;)

Það er einmitt útaf því sem landið fór á hausinn...

Það hugsa allir um sitt eigið rassgat!......

Sorry, en það er bara bull að gengistryggja sig ekki.

Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 29 posts ]  Go to page 1, 2  Next

All times are UTC

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 40 guests

You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group