Hef verið að lenda í vandræðum með 540, 2000 árgerð.
Er ekki viss hvort þetta sé svona mikill raki eða bleyta sem er að leka svona inn en vinstra megin aftur í þá kemur svo svaðalega mikil bleyta í sætið og stundum í mottuna fyrir fæturnar. Við þetta frýs oft rakinn að innan í gluggunum.
Ég prufaði að rífa allan afturbekkin úr, þá tók ég eftir litlum poll í sætinu vinstra megin aftaní..
Ég hef grennslast vel fyrir þarna en sé engan vegin hvaðan þessi leki/raki kemur.. Hefur einhver lent í svipuðu og hefur hugmyndir um hvaðan þetta gæti komið?




