Óháðar bílasölur sem selja bíla út?

Hér skal spjalla um BMW.

Re: Óháðar bílasölur sem selja bíla út?

Postby zazou » Tue 28. Oct 2008 23:42

Aron Fridrik wrote:
zazou wrote:
Alpina wrote:...
Hvað er áhvilandi á þínum bíl og hvað er markaðsvirði ?

Markaðsvirði? Don't ask me, ég er búinn að bjóða 800k með honum, hvílir á 4.3.

Bjarkih wrote:Rökin eru að þá fæst fýrmætur gjaldeyrir inn í landið í staðinn fyrir að hann sitji í einhverjum bíl engum til gagns.

Svo eru mismunandi skoðanir á því hversu réttlætanlegt þetta er.

Staðreyndin er sú að það er til allt of mikið af allt of flottum bílum hér, nú er lag, hvort sem draugarnir í Alþingisnefndunum sinni sinni vinnu eður ei þá virðist vera lag nú til að stöðva eignabruna sem á sér stað á bílasölum landsins.

Lindemann wrote:mig minnir að ég hafi séð sameiginlega auglýsingu frá Smára í hamburg og Georg úranus um að þeir tækju að sér að flytja út bíla........man ekki hvar það var.


Fyndið, ég rakst á Gogga á vappinu bara síðast í dag, tók eftir honum á fös á Rúbí Túsdei. Best að heyra í honum, hann er jú fram- og hagsýnni en flestir.


BMW skráður á hann var skráður á uppboðslistann í mogganum 18 okt..

ekki nógu framsýnn ?


ngplz, Goggi er ekki vitlaus, ef hans bíll var á uppboðslista þá er það af því hann kaus svo.
Brynjar
Alfa Romeo 159

Gamalt:
Jaguar XJ8
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign

Vísitölubílar eru SATANS
User avatar
zazou
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2610
Joined: Sat 01. Nov 2003 13:43
Location: London

Postby Lindemann » Tue 28. Oct 2008 23:54

arnibjorn wrote:Er nóg að flytja bílana bara út ?

Er þá málið úr sögunni ?

Þarf ekki að selja bílana líka? :)

Ég veit ekki alveg hvernig markaður á bílum er úti núna.. er alveg gríðarleg sala á notuðum bílum?


það hefur náttúrulega dregist saman salan þar eins og hérna, bara ekki eins mikið og svo er markaðurinn svo margfalt stærri. Ef bíllinn er á réttu verði selst hann, útaf því hvernig gengið er á krónunni hlýtur að vera hægt að bjóða bíla héðan á betra verði en aðra.
kv. Jakob B. Bjarnason
User avatar
Lindemann
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 3465
Joined: Mon 02. Feb 2004 15:03
Location: norður í rassgati

Postby Bjarki » Wed 29. Oct 2008 00:05

Menn geta bara flutt sína bíla út og selt þar en þeir eiga ekkert að fá neinn vsk til baka úr ríkissjóði.
Ef það er þá þarf að gefa leyfi fyrir alla aðra að flytja sínar vörur úr landi og fá til baka af þeim vsk og toll.
En núna á að bjarga öllum með örþrifaráðum, ráðamenn verða að hugsa alla svona leiki til enda því það má ekki mismuna þegnunum með svona ívilnunum. En á því er mikil hætta.
Margir málsmetandi menn sem bent hafa á það að það er fullt af einstaklingum og fyrirtækjum sem eiga/þurfa að rúlla.
Af hverju? Því þeir eru búnir að vera að gera tóma STEYPU.
En öðrum þarf að hjálpa og þeir eiga skilið að fá hjálp.
En að ákveða hverjir hafa og hverjir hafa ekki verið að gera einhverja vitleysu það er erfitt.
Þessir menn eru ekki að benda á þetta af því að þeir eru illmenni eða vilja fólki illa heldur af því að þeir hafa lesið sögubækur og vita hvað svona kostar og hvar mörkin liggja.

Ég get samþykkt að einhverjar íviljanir komi til þegar skoðað hefur verið gjaldeyrir vs staða ríkissjóðs.
Og þá verður það að gera með heildina í huga.
Gera það sem er betra fyrir meðaljóninn sem hefur verið alveg spakur sl 5 ár og á bara venjulegan bíl.
Verða fleiri bílar sendir úr landi ef það koma ekki til neinar svona "hjálparaðgerðir". Kannski ekki og þá er betra fyrir meginþorra íslensku þjóðarinnar að ekki komi til slíkra aðgerða
=> jafnmikill gjaldeyrir + engar greiðslur úr ríkissjóði.

Kannski frekar að stofna Bílalánasjóð og hjálpa mönnum að greiða mismuninn af veðsetningu - söluverð erlendis.
Bjarki
E39: 540iA '98
User avatar
Bjarki
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2492
Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Location: Reykjavík

Postby bebecar » Wed 29. Oct 2008 08:55

Ég skil alveg þessi sjónarmið að endurgreiðsla vsk muni auðvelda sölu á bílum úr landi. En það er kannski ekki alveg réttmætt að greiða fyrir slíku. Þetta ætti að vera undantekning til að bjarga verðmætum.

Hér í DK er hægt að fá skatt tilbaka þegar bíll er fluttur úr landi, en bara ákveðna prósentu (85%) sem er svo afskrifuð hægt og rólega eftir því hvað bíllinn er gamall. Þannig er kannski ekki alltaf eftir miklu að slægjast ef bíllinn er orðin nokkurra ára gamall (frá því hann var fluttur inn).

Mér þætti þetta alls ekki ósanngjörn leið því þetta myndi þá tengja tekjur ríkisins við það hve lengi bíllinn hefur verið notaður. Bíll sem var fluttur inn nýr og ekki seldist gæti þá fengið fulla endurgreiðslu en 4 ára (til dæmis) gamall bíll myndi kannski fá lítið sem ekkert endurgreitt af vsk.

Annars má benda á eftirfarandi frá Vísindavef Háskólans

Árið 1988 var ákveðið á Alþingi að leggja á virðisaukaskatt og var hann fyrst innheimtur þann 1. janúar árið 1990. Virðisaukaskatturinn leysti af hólmi söluskatt.

Virðisaukaskattur þykir almennt hafa ýmsa kosti fram yfir söluskatt en þó er það galli að innheimta virðisaukaskatts er aðeins flóknari. Helsti munurinn er sá að söluskattur var lagður á heildarupphæðina í hvert skipti sem vara var seld og gat því í raun fræðilega séð lagst margoft á sömu vöruna. Ýmsar undantekningar áttu þó að draga úr líkum á því.

Virðisaukaskattur á hins vegar eingöngu að reiknast af virðisaukanum á hverju sölustigi, eins og nafnið gefur til kynna. Í framkvæmd er því takmarki náð með því að leggja virðisaukaskatt á heildarupphæðina í hvert skipti sem vara er seld, en leyfa seljanda hverju sinni að fá á móti endurgreiddan þann virðisaukaskatt sem hann greiddi sjálfur við kaup á vörunni.


Samkvæmt þessu er um að ræða söluskatt og því ætti þetta ekki að vera endurgreiðsluhæft.

Nú fara í hönd mjög erfiðir tímar og vandamálin sem fólk glímir við eru svo fjölbreytt og alvarleg að það er sénslaust að taka á þeim öllum og hjálpa öllum. Megin reglan HLÝTUR að vera sú að hjálpa beri þeim sem voru varkárastir, ekki endilega þeim sem eru í mestum vandræðum.

Það sér t.d. hver maður ósanngirnina í því að frysta myntkörfulán, flytja þau til íbúðalánasjóðs en gera svo ekki neitt fyrir þá sem tóku innlend lán sem bera verðtryggingu.

Hið sama á við um eiginlega allt annað. Það hlýtur að vera forgangsatriði að hjálpa þeim sem stigu varlega til jarðar. Það er súrt fyrir hina sem spiluðu af meira kappi en forsjá en það munu allir brenna sig og bera kostnað af þessu. Jafnvel þótt fólk hafi ekkert komið nálægt þessari vitfirringu sem viðgekkst heima síðustu 4-5 árin.

Það á að gera fólki kleift að leysa sín mál. T.d. með því að endurgreiða eftir aldri bílsins en þá er óleyst hvernig fólk greiðir upp eftirstöðvarnar á ofveðsettum bíl og það þarf að koma þeim þannig fyrir að fólk geti greitt þær upp.

Þá má heldur ekki gleyma því að í þessu sambandi ætti lántakandinn ekki einn að bera kostnaðinn af þessu. Lánastofnunin á líka að bera kostnað af því að hafa lánað ógætilega.

* það má kannski bæta við að endurgreiðslan ef hún væri eins og að ofan er sagt yrði þá að mestu leiti tengd veðhæfi bílsins (því það fer eftir aldri). Þannig væri meira endurgreitt af vsk á bílum sem væru nýlegir og hátt veðsettir en eldri bílar sem fólk á meira í, fengju minna tilbaka enda kannski ekki eins þarft að selja þá.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Previous

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 10 guests