carhartt wrote:
okei þá er þetta útrætt mál:D þá tek ég þennan bíl ekki nema það er mjög góð milligjöf
Ég fór og skoðaði umræddan bíl fyrir Arnar...
Milligjöfin sem að Michel hafði í huga var alveg raunsæ...
Ég prófaði bílinn ítarlega, skoðaði allar fóðringar og þetta er mjööög heill bíll, og Michel er greinilega búinn að endurnýja alveg mjög mikið í bílnum...
Þetta er held ég bíll sem að menn fá áhuga á um leið og þeir fara að keyra þetta, en það sem að kom mér mest á óvart var hversu góð hröðunin var þó að bíllinn væri með gírun upp á nærri 100kmh í Fyrsta þrepi...
Eflaust væri hægt að gera skemmtilegan bíl úr þessu með því að setja E34 M5 LSD í hann
Allavega alveg þrususprækur bíll, og það eina sem að ég gat sett út á var lakkið og svo var hljóðið ALLT OF hátt...
Spurning um að setja aftur í hann hvarfakútana eða allavega einhverjar túbur... 3" í rör frá vél í opna kúta er ekki alveg það sem að maður vill í svona bíl..
Mjög solid að öðru leyti
