Sælir félagar.
Ég er að spá í að henda magasíni í skottið hjá mér. En áður en ég geri það þarf ég að vita hvort það séu einhverjar tengingar þarna fyrir í hólfinu þar sem magasínið fer í eða ekki.
Eru ekki oftast einhverjar snúrur fyrir magnara og viðbættar græjur þarna í hólfunum ?
Eða þarf ég að leggja allt upp á nýtt ? Þarf maður eitthvað sérstakt magasín fyrir sérstaklega E39 eða get ég notað magasín úr annari týpu af BMW ?
Kv. Bergur
