Löggan með viðbragðsáætlun vegna kreppunnar

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Löggan með viðbragðsáætlun vegna kreppunnar

Postby Tommi Camaro » Thu 23. Oct 2008 19:28

http://visir.is/article/20081023/FRETTIR01/610259037/-1
Lögreglan hefur tilbúna viðbragðsáætlun komi til múgæsings eða annars ófriðar vegna efnahagsástandsins. Reiði í samfélaginu hefur orðið til þess að öryggisgæsla í kringum ráðamenn og einstaka menn í viðskipta- og bankaheiminum hefur verið efld.

Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn, segir að sér komi á óvart hve lítil breyting hefur orðið á daglegu lífi fólks, sem standi virðist ríkja ró og friður. Hann er þó viðbúin því að ýmislegt kunni að breytast þegar fleiri missa vinnu sína og harðna fer

Lögreglan hefur þegar sett saman viðbragðsáætlun, fari svo að gamanið kárni.

Fréttastofa Stöðvar 2 hefur heimildir fyrir því að sérstök öryggisgæsla hafi verið við heimili fyrrverandi háttsetts bankastarfsmanns um það leyti sem bankarnir fóru í þrot, auk þess sem gæsla hefur verið efld í kringum helstu ráðamenn þjóðarinnar að undanförnu.

Vel má álykta að hert öryggisgæsla sé til marks um að talsverð undirliggjandi ólga sé í samfélaginu.
523 E61 Touring
Mazda Rx7 Ekkert turbo vesen 12.060 @ 117.80
Clio 1,8 á R888 Ralycrossarinn
Hæðarstilli dekk ókeypis fyrir Reykjavik og nágrenni
Offical E30 H8R CREW
Member ONE
User avatar
Tommi Camaro
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3377
Joined: Thu 30. Jan 2003 06:08

Postby Lindemann » Thu 23. Oct 2008 20:01

þeir mættu nú kannski frekar fara að æfa sig á hengingarhnútunum til að geta hengt þessi fífl sem fara á þessum tímum útí það að brjótast inn og stela annara manna eigum.......... :?

skítt með einhverja viðbragðsáætlun.
kv. Jakob B. Bjarnason
User avatar
Lindemann
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 3465
Joined: Mon 02. Feb 2004 15:03
Location: norður í rassgati

Postby Einarsss » Thu 23. Oct 2008 21:08

þeir ættu amk að geta ráðið eitthvað decent fólk í lögregluna nú þegar atvinnuleysið fer hækkandi
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Postby Stanky » Thu 23. Oct 2008 23:18

Spurning hvort svona frétt sé ekki "múgæsing" útaf fyrir sig?

Afhverju héldu þeir þessu leyndu?

Annars er gott að undirbúa þetta - það getur allt gerst á þessum tímum....
Stanky
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2026
Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51


Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: Baidu [Spider] and 14 guests