En jamm, planið er semsagt að byggja við hesthúsið

vill helst ekki fara í neitt svakalegt en frumkvöðlar E30 Turbo-væðingarinnar hafa báðir hlegið sig máttlausa þegar ég nefni þetta

það er semsagt mælt með því að ég hætti að blekkja sjálfan mig og fari í stærri pakkann (lesist Hx35).
Ég er ekki enn alveg viss um hvora leiðina ég fer með þetta project, svipuð vinna og kostnaður eflaust sá sami. Eitt er þó víst, þessi bíll verður ekki N/A næsta sumar

Ég er haldinn vægri fullkomnunaráráttu og vill þess vegna hafa vélarrýmið clean og eins original útlítandi og mögulegt. Bíllinn er svartur og allar pípur og hosur verða svartar. Ætla að reyna að halda hita í vélarrými í algjöru lágmarki og dunda mér við að leiða kalt loft að loftsíu. Ég hef nægan tíma í þetta og bíllinn verður í notkun óbreyttur eitthvað fram á vor, ætla að dunda mér við að kaupa þá parta sem mig vantar í rólegheitum. Planið er bara að vera með þetta up and running næsta sumar

intercooler verður ekki mjög áberandi því að ég vill alls ekki fá athygli út á þetta. Reglan hérna úti er 20% aflaukning eða 20% aukning á slagrými ef ég man rétt og þetta er klárlega aðeins rúmlega 20% aukning á afli
Annars ég er að gera dauðaleit að Borbet B undir bílinn, fyrri eigandi var með þannig felgur undir bílnum en þær eru í eigu vinar hans. Þær eru out of production og hrikalega erfitt að finna þær 9x16 undir E30, er mikið búið að leita....ef einhver veit um 4 góðar þá bara info í PM med det samme.