www.mbl.is wrote:Schumacher meiðist í fótbolta
Michael Schumacher, heimsmeistari í Formúlu-1, hefur neyðst til að hætta við þátttöku í æfingu hjá enska fótboltafélaginu Manchester United, sem ráðgerðvar á miðvikudaginn, vegna meiðsla sem hann varð fyrir - í fótbolta!
Schumacher hefur fengið fyrirmæli lækna um að hvílast næsta hálfan mánuðinn vegna hnémeiðsla í leik með liði sveitunga sinna í Sviss.
Löngu var ákveðið að hann myndi æfa með ensku meisturunum í æfingamiðstöð liðsins í Carrington áður en hann færi síðan til Old Trafford-leikvangsins og tæki þátt í vítaspyrnukeppni. Af því verður ekki að sinni vegna meiðslanna.
Hvað er í gangi... og að æfa með Man utd!!!

