Jæja núna er druslan rafmagnslaus... ef ég hlaða inná geyminn með öðrum bíl gengur hann eitthvað en deyr svo, þannig að geymirinn nær að hlaðast. Held hann sé líka nýlegur.
Alternatorinn átti að vera með heillegum kolum en segir það allt sem segja þarf um hvort alternatorinn sé að hlaða nóg? Ég er ekki með AVO mæli en gæti hugsanlega fengið einn einhvernveginn, hversu mikla hleðslu á rafallinn að hlaða? Er þetta ekki alveg örugglega alternatorinn? Geta svosem bara verið kolin.
Viftureimin snýr honum og allt. Er öryggi fyrir alternatorinn? Það voru stundum á þessum vinnuvélum sem ég var að gera við í gömlu vinnunni.
Um daginn kom líka sama vandamál upp, startaði honum með afgöngum úr batteríinu og hleðsluljósið kom á, gaf aðeins í og það fór....
Hleðsluljósið kemur BTW aldrei á núna.
Ég hef heyrt um dæmi þar sem alternator er að hlaða of mikið inná geymi...



