Vatnskassi og miðstöð í E36

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Vatnskassi og miðstöð í E36

Postby DabbiHan » Thu 02. Oct 2008 23:19

Sælir kraftsmenn,
eftir stutta og árángurslausa leit þá ætla ég að pósta vandræðum mínum hér :)

ég er með e36 318 '95 árgerð og hann tók upp á því að hita sig töluvert....ég reif upp húddið að tjékka hvað væri að og sá þá að slangan úr kassanum og í vélina hafði dúndrast af ... trúlega vegna þrýstings ?...
ég henti slöngunni aftur á og herti vel og keyrði heim og hellti vatni á hann... og daginn eftir hitnaði hann aftur...svo ég lét menn líta á hann og komust þeir að því að það þyrfti bara að lofttæma kvikindið.... og eftir það hefur hann bara verið gullfallegur og látið vel........þaaangað til í kvöld þegar ég skildi hann eftir í gangi í svona 10mín....
keyrði af stað og eftir svona 50-100 metra kviknaði helvítis ljósið ... þannig að ég drap á bílnum, leyfði honum að kæla sig og dúndraði svo heim og hóf skrifin....

svo er miðstöðin eitthvað í fokki útaf þessu... eftir að þeir lofttæmdu hann þá hitnar miðstöðin mjög seint og illa.... er þetta í einhverju samfloti eða hvur fjandinn er að ?

með von um góð svör :)
DabbiHan
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 91
Joined: Sun 01. Jul 2007 05:03

Postby JónP » Fri 03. Oct 2008 00:04

Var að ganga í gegnum þetta sama með 525ia e34 og case-ið hjá mér var að vatnskassinn var stíflaður og svo lak hann meðfram einhverju skítmixi (kítti). Gáðu hjá þér hvort hann er að leka...miðstöðin nær trúlega ekki að hitna ef það er lítið vatn á kerfinu. Svo með stíflunina þá var það þannig að ef maður lét hendina á kassann (ristarnar) þá var hann bara kaldur þó að vatnið hefði náð vinnsluhita.
E34 540 '93
E34 525 '92 (seldur)
E32 730 V8 '94 (seldur)
E34 525 '94 (seldur)
JónP
Kassabílstjóri
 
Posts: 131
Joined: Fri 17. Jun 2005 01:45

Postby DabbiHan » Fri 03. Oct 2008 00:08

þakka þér fyrir....fer yfir þetta á morgun ... en hvað var að stífla kassann hjá þér ? :)
DabbiHan
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 91
Joined: Sun 01. Jul 2007 05:03

Postby JónP » Fri 03. Oct 2008 00:15

Það var örugglega samansafn af einhverju gruggi...fyrri eigendur ekki nógu duglegir væntanlega að skipta um vatn. Og svo var eitthvað plaströr þarna bara á þvælingi :lol:
E34 540 '93
E34 525 '92 (seldur)
E32 730 V8 '94 (seldur)
E34 525 '94 (seldur)
JónP
Kassabílstjóri
 
Posts: 131
Joined: Fri 17. Jun 2005 01:45

Postby DabbiHan » Fri 03. Oct 2008 00:36

hahaha :D það eru til nokkrir svona snillingar :)
en þakka þér kærlega fyrir svörin :)
DabbiHan
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 91
Joined: Sun 01. Jul 2007 05:03

Postby DabbiHan » Fri 03. Oct 2008 10:00

nú er ég reyndar með aðra spurningu..... hvar lofttæmi ég kassann ?
DabbiHan
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 91
Joined: Sun 01. Jul 2007 05:03

Postby Elnino » Fri 03. Oct 2008 13:50

DabbiHan wrote:nú er ég reyndar með aðra spurningu..... hvar lofttæmi ég kassann ?



Hjá mér er bara plastskrúfa við hliðina á forðabúrinu á vatnskassanum.
Þannig er það hjá mér, ég er líka með e36
BMW 330 metch 2002
Bmw e-36 323 coupe - 1997 - SELDUR
User avatar
Elnino
Getawaybílstjóri
 
Posts: 798
Joined: Fri 15. Apr 2005 14:18
Location: Þorlákshöfn City!

Postby DabbiHan » Fri 03. Oct 2008 15:45

flotter....bætti á hann og lofttæmdi í morgun og hann er orðinn stilltur núna :D
DabbiHan
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 91
Joined: Sun 01. Jul 2007 05:03


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: Baidu [Spider] and 45 guests