Jhá góðan dagin. Ég er ekki menntaður BMW fræðingur, ég myndi varla einu sinni flokkast undir Bmw fúskara. ég á það sameiginlegt og flest allir hérna inni að ég nýt þess til fulls að keyra bmw, horfa á bmw, Bmw í mínum augum er hugarástand, lífstíll. En nóg af malcom x ræðunni minni.
mig vantar upplýsingar um olíupönnu. Ég á bmw e30 með 2 lítra línu vél.
ég keypti aðra vél í hann úr e30 ef á man rétt. lína líka merkilegt nokk.
nema hvað núna er selfoss orðinn fyrsti bærinn á íslandi til að vera alveg vistvænn, það er ekki með nokkru móti hægt að keyra um götum bæjarins. ef það er ekki klett há hraðahindrun þá er vegurinn holóttur og all vondur. ég lenti í því á laugardaginn að fara yfir hraðahindrun á löglegum hraða, en ekki löglegum fyrir bílinn minn og sprengi olíupönnuna á bílnum mínum all svakalega. olíupannan sem var á upprunnalegu vélinni sem ég á ennþá mjög heil og frekar ný,passar ekki á vélina sem er í honum núna. hún passar en olíu kvarðinn fer ekki niður á sama stað. í gömlu vélinni fór kvarðinn í gegnum blokkina og oní pönnuna. en á vélinni sem er í honum í dag, fer kvarðinn beint í pönnuna.
getur einhver leiðbent mér hvernig panna þetta er sem mig vantar svo ég geti flutt hana inn, eða keypt hérna á klakanum. eða sagt mér hvort það sé "Löglegt" að láta hina olíupönnuna, sem er heil af gömlu vélinni, án þess að hafa kvarða.. og hvort það verði of mikið "Skíta-mix" ?
Með von um góð og hnitmiðuð svör.


