Ætla að stela myndum frá www.vf.is þangað til ég kemst inná símann í tölvu.

Tankurinn er eins og sagt var, 28-29 metrar og 10 í þvermál - enginn smá hlunkur. Notaðir voru 3 kranar, 200, 300 , 300 tonn.
Bíllinn sem ferjar þetta er líka engin smá græja - dregur 250t en vagninn sem hann dregur verður að segjast vera alvöru græjan - 60 hjóla fjarstýrður vagn. Þ.e maður keyrir á eftir bílnum og stjórnar ca 30 hjólum að aftan bara með fjarstýringu, svipað og á vinnulyftu. ótrúlegt dæmi.
Alger tækjadella í manni

