Slag í stýri.

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Slag í stýri.

Postby UnnarÓ » Thu 18. Sep 2008 20:53

Þegar ég er að keyra þá tek ég eftir því að bílinn byrjar sjálfkrafa að beygja pínu lítið í til hægri eða vinstri, semsagt ég þarf að leiðrétta stefnu bílsins af og til, mjög pirrandi í hjólförum og á 70km+. Ég var eiginlega búinn að venjast þessu en mér finnst eins og þetta hafi versnað uppá síðkastið. Þetta er semsagt eins og massíft slag í stýrinu.

Dekkin eru ekkert misslitin, spyrnur og fóðringar eru í fínu standi var mér tjáð. Var búinn að skoða eitthvað á bimmerforums og þar var talað um að algeng ástæða fyrir slagi í stýri á E34 væri laus einhver ró í stýrisganginum, ég athugaði hana og hún var pikkföst.
Gæti þetta þá ekki verið stýrismaskínan að faila? Er þetta eitthvað fyrir leikmann að krukka í? S.s. einhvern sem hefur ekki aðgang að lyftu/gryfju.

Er ekki til einhver ódýr lausn á þessu, ég er orðinn þreyttur á að horfa á eftir 5000 köllunum fjúka í þennan bíl :lol:

..og ef einhver veit um leið til þess að ná sviss úr bílnum sem ekki er hægt að ná út með hefðbundna ráðinu má endilega láta ljós sitt skína hér :)
UnnarÓ
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 444
Joined: Wed 21. Feb 2007 22:15
Location: RVK

Postby ömmudriver » Thu 18. Sep 2008 21:20

Ertu búinn að athuga millibilsstöngina, svo er spurning með hann pitman?
Nútíðin:
E34 Touring '93 > R.I.P.
E34 530iT '95

Þátíðin:
E32 735i '89 ND-020
E30 325iC '89 AN-309
E30 318i '88 JS-554
E34 525iA '94 OZ-390
E28 518i '87 IT- 629
E46 318i '00 TB-590
ömmudriver
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5955
Joined: Mon 26. Sep 2005 00:12
Location: Litla Ameríka

Postby Mazi! » Thu 18. Sep 2008 21:23

hefuru athugað þetta ? ónítir stýrisendar, hjólastilla, réttur loftþrýstingur í dekkjum ?
Image
User avatar
Mazi!
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 6789
Joined: Mon 16. Apr 2007 00:27

Postby UnnarÓ » Thu 18. Sep 2008 21:37

ömmudriver wrote:Ertu búinn að athuga millibilsstöngina, svo er spurning með hann pitman?

Nei, þyrfti að athuga þetta, hvað er enska heitið yfir millibilsstöng?

Mazi! wrote:hefuru athugað þetta ? ónítir stýrisendar, hjólastilla, réttur loftþrýstingur í dekkjum ?

Loftþrýstingurinn er góður, en ég hef ekki athugað stýrisendana né látið hjólastilla hann. Gæti svona ruddalegt slag lagast einungis með hjólastillingu?
Stýrið er ekkert að kippast til, þetta er meira eins og dekkin séu að beygja án nokkurs samráðs við stýrisganginn.
UnnarÓ
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 444
Joined: Wed 21. Feb 2007 22:15
Location: RVK

Postby Dóri- » Thu 18. Sep 2008 21:42

Hvað með flexpúðann á stýrinu ?
User avatar
Dóri-
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2042
Joined: Fri 04. Mar 2005 16:35

Postby ömmudriver » Thu 18. Sep 2008 21:46

Millibilsstöngin heitir tie rod, center og er nr.9, pitman er nr. 10:

http://www.realoem.com/bmw/showparts.do?model=HD51&mospid=47375&btnr=32_0334&hg=32&fg=25
Nútíðin:
E34 Touring '93 > R.I.P.
E34 530iT '95

Þátíðin:
E32 735i '89 ND-020
E30 325iC '89 AN-309
E30 318i '88 JS-554
E34 525iA '94 OZ-390
E28 518i '87 IT- 629
E46 318i '00 TB-590
ömmudriver
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5955
Joined: Mon 26. Sep 2005 00:12
Location: Litla Ameríka

Postby birkire » Thu 18. Sep 2008 22:14

Þó maður geti ekki séð jack shit hvort stýrisupphengjan sé að klikka gæti það verið, ég er með 7km slag í stýrinu og frumherji setti bara útá hana(þó að allt annað sé í döðlum :? )

Kallast idler arm bushing
vti
birkire
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 2518
Joined: Fri 30. Nov 2007 12:46
Location: sniffa lím

Postby Einarsss » Thu 18. Sep 2008 22:15

Hef heyrt þetta kallað "dauðaslagið"

Ekki beint gaman ef þetta myndi detta úr sambandi þegar þú á síst von á því, myndi hiklaust láta kíkja á þetta
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 49 guests