by Porsche-Ísland » Thu 18. Sep 2008 17:04
Þakka góð orð um bílinn minn.
Er orðinn nokkuð ánægður með hann,, Felgur eru enn smá spurning.
En til að koma honum saman og norður fyrir bíladaga þurfti hjálp margra manna:
Þar voru fyrst og ekki seinast málararnir: Brynjar (Kópson) Valdi og Júlli.
Síðan komu flestir eða ekki allir vinir mínir og einnig slatti af mönnum sem bara áttu leið framhjá skúrnum að samsettningu og unnu með okkur langt fram eftir nóttum.
Skemmtilegst var þegar þurfti að tengja nokkra víra og menn voru að pæla í hver gæti reddað þessu og þá voru 3 rafvirkjar í skúrnum, sem tóku málið að sér.
Allt voru þetta topp menn og vil ég nota tækifærið og þakka öllum sem koma að þessu verki.
Í vetur er stefnan tekið á að fara yfir kramið í bílnum.
Þannig að þessu er ekki lokið.
Er þessu nokkurn tíman lokið?
Last edited by
Porsche-Ísland on Thu 18. Sep 2008 17:25, edited 1 time in total.
Halldór Jóhannsson
Porsche 944 Turbo S '89
Porsche 924 Turbo '81
Porsche Boxster S '02
Audi A6 Quattro Avant '96