Að eiga BMW

Hér skal spjalla um BMW.

Að eiga BMW

Postby GetSmart » Tue 09. Sep 2008 16:37

Mig hefur lengi, lengi dreymt um að eignast BMW, og núna er komið að því að ég ætli að kaupa minn fyrsta bíl (búin að vera með próf í tæpt ár). Mig langar rosalega að versla einmitt BMW en það eru alltaf einhverjir sauðir í kringum mann sem reyna að telja mann af því.

Maður heyrir reglulega hluti eins og "BMW bila alltof mikið" eða "BMW eyða alltof miklu" - Ég tel mig svosem vita nægilega mikið um bíla, að BMW þurfa ekki endilega að bila meira en aðrar tegundir svo lengi sem þeim sé vel viðhaldið (þetta nær ekki endilega yfir einhverjar gamlar 7'ur með skrímsli undir húddinu), en mig langar samt að fá að heyra eitthvað um þetta frá ykkur eigendum og delluköllum. T.d. er væntanlega dýrar að útvega sér varahluti í BMW heldur en Toyotu og þá komum við að punkti númer 2.

Ég hef bullandi bíladellu og hef haft hana lengi, hinsvegar veit ég ekkert "rosalega mikið" um bíla, þ.e.a.s frá tæknilegu sjónarhorni. T.d. hef ég hvorki kunnáttu né aðstöðu til að fikta og lagfæra bíla... Og maður heyrir stundum að það sé ekkert vit í að eiga BMW nema þú sért einhver fúskari sem getur leikið þér í þessu sjálfur. Kunnáttan mín byrjar og endar á að skipta um olíu.

Allavega, ætti ég að fylgja draumnum eftir og skella mér á bimma og "sjá eftir því seinna meir" eins og sumir halda fram? Hvaða týpur ætti ég þá einna helst að vera skoða?

Get svosem látið það fylgja að ég ætla mér að eyða rúmri hálfri milljón í kaupverð á bílnum og myndi svo hafa efni á u.þ.b 40 þúsund krónum í rekstri á mánuði.

Takk fyrir hjálpina :)
GetSmart
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 8
Joined: Tue 09. Sep 2008 16:19

Postby Húni » Tue 09. Sep 2008 16:44

ég hef ekki verið að lenda í eitthverjum svaka bilunum eða þannig


spurning hvað þú ert að leita eftir hvort þetta sé krúser eða ætlarðu að vera upp á braut að leika þér viltu nýlegan eða eldri típu



ég persónulega fíla rldri bílana betur svo sem e30 e34 e28 e21
Image
User avatar
Húni
Getawaybílstjóri
 
Posts: 650
Joined: Thu 09. Feb 2006 18:24
Location: Grafarvogur

Postby Einarsss » Tue 09. Sep 2008 16:55

þetta er bara gamall húmar"BMW= bilar meira en venjulega"

load of crap.

Búinn að eiga nokkra bmw og ekki búinn að lenda í einhverju mega veseni.... öðru en það sem gæti komið fyrir hvaða bíl sem er/viðhald

Hins vegar myndi ég skoða eigandaferilinn svolítið ef þú ert að fara fá þér bmw með einhverju afli í. Ef það eru margir eigendur í röð sem eru´í yngru kantinum þá getur verið kominn tími á viðhald vegna vanrækslu
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Postby Bandit79 » Tue 09. Sep 2008 17:17

Minn var meira " Bilar minna en venjulega" eða "Baden meinhoff wagen" :D
BMW E34 525i Sedan 1991 *LSD*
BMW E36 320i Touring 1995 .. seldur
BMW E34 520i Touring 1994 .. seldur
BMW E36 320i 1997 Seldur .. í partamat í DK
BMW E39 525D Touring 2003 seldur ... snilldar tæki
BMW E34 525i 1992 seldur með mikilli eftirsjá
User avatar
Bandit79
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1064
Joined: Thu 12. May 2005 12:34
Location: Selfoss/Hveró

Postby Hreiðar » Tue 09. Sep 2008 18:25

Ég keypti mér minn fyrsta BMW í Desember sl. og hef ég ekki eytt neitt í hann til að laga. Bara uppfæra bremsuklosa og inspektion.
"BMW ÞEIR EYÐA SVO MIKLU" Þetta heyrði ég strax frá fólki þegar ég keypti minn. Bull og vitleysa, er á 320d og eyðir hann um 6.5L. Það er bara spurning um vélarstærð og læti þegar það kemur að eyðslu. T.d. fýla ég 318 því þetta eru þægilegir bílar og góðir krúserar sem eyða litlu. Annars mæli ég með þristum og fimmum :) Hef ekki prufað aðra BMW :oops:
User avatar
Hreiðar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2220
Joined: Fri 16. Nov 2007 21:10

Postby SteiniDJ » Tue 09. Sep 2008 20:04

Það er svo gaman að hlusta á fólk þegar það vælir um hvað BMW bilar mikið og hvað þeir eyða miklu. Það fólk veit líklegast ekkert hvað það er að segja. Höfum verið með sex eða sjö bimma á heimilinu og aldrei lent í neinum alvarlegum bilunum.

Ég þurfti að skipta um vatnsdælu um daginn og það kostaði mig um 25000 krónur með vinnu. Félagi minn er með Toyota Yaris og borgaði tvisvar sinnum meira en ég. Svo þurfti annar vinur minn sem er ekki með BMW að skipta um bremsur - og viti menn, það var tvisvar sinnum dýrara en hjá mér.
Last edited by SteiniDJ on Wed 10. Sep 2008 20:04, edited 1 time in total.
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Postby JoeJoe » Tue 09. Sep 2008 20:07

Það er reyndar alveg satt það sem þú ert að heyra um að það sé lítið vit í því að kaupa sér bmw, þá meina ég gamlann, og hafa ekki aðstöðu til að fikta í honum sjálfur. Ef þú getur ekki komið þér í einhverja aðstöðu og þarft að fara með hann á verkstæði þá getur það orðið mjög dýrt. En það að eiga BMW er bara snilld, það loksins gefur manni ástæðu til að fara vel með bílinn sinn og bæta hann smá saman. Þannig að ef þú vilt eiga ómerkilegann bíl sem bilar minna, þá vill ég bara segja eins og aðrir hafa sagt hér að ofan, það bila allir bílar og það fer langmest eftir viðhaldi bílsins. Það eina er að BMW varahlutirnir eru aðeins dýrari heldur en í aðra bíla en upp á móti kemur að það er hellingur af fólki hér á spjallinu sem lumar á ódýrum varahlutum þannig að það þarf ekki að kosta mikið að halda gömlum bmw við.
540 e34(touring) til sölu
316 e46 SS611 seldur :)
540 e34 TMK 79 seldur :(
320 e36 KY 398 ónýtur :(
User avatar
JoeJoe
Kassabílstjóri
 
Posts: 217
Joined: Sun 05. Feb 2006 16:55
Location: Reykjavík

Postby arnibjorn » Tue 09. Sep 2008 20:20

Ég er með E30 335 sem þú mátt kaupa, lendir ekki í NEINU veseni.. ég lofa.
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Postby GetSmart » Tue 09. Sep 2008 20:25

arnibjorn wrote:Ég er með E30 335 sem þú mátt kaupa, lendir ekki í NEINU veseni.. ég lofa.


Haha, einmitt :) :lol:
GetSmart
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 8
Joined: Tue 09. Sep 2008 16:19

Postby Bjarkih » Tue 09. Sep 2008 22:01

Slithlutir eru að ég held ódýrari en í marga aðra bíla. Svo er þetta náttúrulega hverrar krónu virði.
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --
User avatar
Bjarkih
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3154
Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Location: Akureyri 603

.

Postby Wolf » Tue 09. Sep 2008 22:35

Það er alveg rétt hjá þér að þetta eru sauðir í kringum þig sem eru að telja þig ofan af því að fá þér BMW. Þeir sem segja að BMW bili meira og eyði meira en annað, eru svona gamlir kallar sem hafa aldrei átt BMW og eru að tala út um analinn.

Minn 523ia er að verða 10 ára, og það hefur ekkert bókstaflega bilað, einungis verið skipt um slithluti, svo eyðir hann minna en 2.0 ssk Carina, Nissan..og svipað frá þeim tíma.


Mín ráðlegging: Fáðu þér einhvern af þeim E46 318 árg 02-05 sem eru til sölu hér á spjallinu, þá ertu í uber góðum málum!! :D
"I have not taken any drugs ore anything for a whole week now!" -Oh really? "Yeah, and feel so good I wanna get high!"
-Cheech&Chong

BMW E60 525i xDrive 2008
Wolf
Getawaybílstjóri
 
Posts: 764
Joined: Wed 11. Jun 2003 00:53

Postby BirkirB » Tue 09. Sep 2008 22:41

Bmw er fínt...

Kallinn sem sér um Sjóvá hér á Húsavík sagði að tryggingar á bmw væru hærri en venjulega því varahlutir væru svo dýrir...hvað svo sem er til í því?

Pabbi er einmitt litaður af svona bimmafordómum...þorir ekki að eiga X5...:roll:
E39M5
I4M50
User avatar
BirkirB
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1838
Joined: Fri 20. Jul 2007 13:51
Location: Rkv

Postby íbbi_ » Wed 10. Sep 2008 00:04

ég hef átt tvo E32-730,einn E32 735,einn E38 730i v8,e36 318is, E39 540i mtech,og E46 alpina b3 og verið með þá nokkra til daglegrar og jafnvel langtíma notkunar, m.a 2x 745 1x545 1x520d x5 og flr sjöur, þannig að ég ætti nú að vera nokkuð marktækur um hvernig það er að eiga og reka sona bíl,

mitt mat, skoðaðu bílinn, fokk þjónustubók, láttu athuga með aksturinn, láttu fara vadlega yfir bílin helst af umboði eða áræðanlegum aðila með þekkingu á bmw, gott eintak af flestum gerðum af bmw hafa samkvæmt minni reynslu geta reynst bara mjög vel, en ég hef líka séð og átt bmw-a sem voru gjörsamlega útúr kortinu rekstrarlega séð,

þessvegna er að mínu mati fyrir öllu að skoða ástand og tjónaferil bílsins ýtarlega og komast af því hvað maður er með í höndunum, bíllin reynist svo yfirleitt í beinu samhengi við hevrnig ástandi hann reyndist vera í,

þetta gildir að sjálfsögðu um allar tegundir bíla, en það skiptir mann kannski aðeins meira máli með premium brand merki í höndunum,

viðhaldskostnaður almennt yfir línuna hjá bmw flóruni ,myndi ég samt segja að sé almennt í hærri kantinum, en við erum líka að ræða um heilmiklar græjur yfirleitt í beinu samhengi við viðhaldskostnaðinn, mér finnst t.d ekkert óeðlilegt að bíll eins og t.d 545i rukki steddý nokkurhundruð k á ári í viðhald og þjónustu, í beinu samhengi við verð og stærðarmunar við t.d venujlegan beater einhver,


stór hluti munar á viðhaldskostnaði á t.d þýskum lúxusbíl og venjulegu japönsku hemilistæki flest í sérhæfðri þjónustu, þú ert mikið bundnari upop á viðhald og þjónustu með 6m+ merkjavörubíl heldur en bíl sem þarnast minna og auðveldara viðhalds,

fyrir mér er það hinsvegar alveg klárt mál hvort það sé þess virði að þurfa kannski að leggja meira út fyrir rekstrinum, þ.e.a.s hvort bíllinn sé þess virði að þurfa kannski að leggja dáldið út til að geta verið á honum,
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Postby Misdo » Wed 10. Sep 2008 00:31

ég keypti minn sem fyrsta bíl og er á honum enn hann hefur ekkert bilað neitt stórlega eina sem hefur gerst er að vatnsdæælan fór, altenator og svo bremsudiskar og bremsuklossar það er það eian sem hefur gerst í þau 3 ár sem ég hef átt hann :)
Stefán Haukur
VW Golf MKV Gti
VW Golf MK4 seldur
BMW E36 323i Seldur
Honda Civic Seldur
BMW 318ia E36 rifinn
You'll Never Walk Alone
User avatar
Misdo
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1586
Joined: Thu 23. Nov 2006 22:36

Postby IceDev » Wed 10. Sep 2008 00:49

Að eiga BMW er góð skemmtun. Bílaeign slík er bönnuð börnum innan 17 ára. Foreldrar og forráðamenn barna og unglinga eru vinsamlegast beðnir um að virða aldurstakmark

Góða Skemmtun
IceDev
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3976
Joined: Sun 29. Feb 2004 03:40

Next

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 25 guests