http://visir.is/article/20080907/FRETTIR01/356214310
Ráðist var á lögreglumann um miðnætti við heimahús í austurbæ Kópavogs.
Lögreglan hafði verið kölluð þangað vegna hávaða. Þegar lögreglumaðurinn reyndi að ræða við fólkið var hann skallaður, tekinn hálstaki og svo snúinn niður.
Þegar félgar hans reyndu svo að koma honum til aðstoðar hindruðu aðrir veislugestir þá. Þeir kölluðu því eftir liðsstyrk og beittu varnarúða og kylfum til að ná tökum á ástandinum.
Alls voru fimm handteknir og bíða fjórir þeirra yfirheyrslu. Lögreglumaðurinn var fluttur til skoðunar á slysadeild en reyndist ekki alvarlega slasaður.

