Ég skrapp á brautina seinasta Sunnudag með skólafélaga mínum.
Þetta var sýning á "ofurbílum" og svo fóru nokrrir á brautina að prófa.
Veðrið var vægast sagt leiðinlegt og ekki sérlega mikið af bílum. Þó voru þarna t.d. Ferrari F50, F360, F355, 348, 328, 208 + hellingur af Porsche, einn Lambo Countach og fleira.
Félagi minn er nokkuð lúnkinn með myndavélina og hann tók nokkrar myndir af þeim sem spreyttu sig í bleytunni á brautinni.
Eitthvað var búið að fikta í þessum. Stakk allt af á beina kaflanum og lætin svakaleg
Ekki supercar en hélt vel í hina bílana í þessum aðstæðum.
Þessi þorði ekki að taka mikið á bílnum. Enda ekki ódýr
Ekki Ferrari-legt hljóð í þessum
Sjúka hljóðið í þessum
Þessi var einna bestur að keyra. Sýndi flotta takta eins og sést.
Þessi var mjög fær en bíllinn eflaust "handful" í bleytunni. Endaði á að festa sig á grasinu.
Fannst þessi verulega vígalegur.
Þvílíka brjálaða hljóðið í þessum (GT 500)
Metro-inn stakk allt af á brautinni. Ökumaðurinn mjög fær og bíllinn góður. Keppir í "Tarmac Rally".
Geðveikt vígalegur bíll



