Festi ró á getnaðarlimnum

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Festi ró á getnaðarlimnum

Postby xripton » Wed 03. Sep 2008 17:58

Tilraun logsuðumanns í Malasíu til að lengja á sér getnaðarliminn fór úrskeiðis er ró sem hann þræddi upp á liminn festist þar þegar honum reis hold.

Dagblaðið The Star greinir frá því að maðurinn hafi leitað á sjúkrahús þar sem tókst að ná rónni af limnum með því að losa úr honum blóð og skera burtu efsta lag húðarinnar.

Blaðið sagði að slökkvilið og björgunarsveitir hafi einnig lagt sitt að mörkum við tilraunir til að losa manninn úr þessari prísund.

Logsuðumaðurinn er á þrítugsaldri. Hann ætlaði að lengja liminn með því að festa róna á hann í þeirri von að þyngdin teygði á limnum. Langaði hann að limurinn yrði orðinn lengri er hann trúlofar sig í næstu viku.

Maðurinn er á batavegi.

Í síðasta mánuði bárust fregnir af ungum manni í Kúala Lúmpúr sem reyndi að auka kynorku sína með því að þræða stálhring upp á lim sinn. Þurfti að fá slökkviliðið til að skera hringinn af eftir að læknar gáfust upp við að losa hann



Jæja segiði satt hverjir hafa gert þetta
BMW e46 325i Seldur
xripton
Kassabílstjóri
 
Posts: 242
Joined: Fri 31. Aug 2007 13:16
Location: Reykjavík

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 39 guests