Undanfarið hef ég verið að stríða við veikindi og hef lést slatta og ekki mátti ég við því.
Ég var búinn að vera á fullu í ræktinni og náði að bæta á mig smá vöðvamassa, svo mætti litli strákurinn minn á svæðið fyrir 4 mánuðum og vöðvamassinn hvarf útaf því að ég hætti að mæta í ræktina.
Vöðvar eru jú eins og rándýrir iðnaðarmenn og ef maður borgar þeim ekki (með því að éta og lyfta) þá eru þeir snöggir að stinga af.
Hvað finnst ykkur gott að éta til að þyngjast mikið, ég er núna að háma í mig ís, rjóma, ostakökur og þessháttar... þetta er bara leiðinlegur matur til lengdar og langar mig að fá einhver tips um þyngjandi mat sem er ekki endilega mjólkurbased...
endilega komið með einhver góð ráð

