Ég á Sony Ericsson P1i, get ekki annað en mælt með honum, með snertiskjá, qwerty lyklaborði (svo maður er svakalega snöggur að skrifa, hentugt fyrir email, kraftinn og msn

)
Hann styður exchange eins og þú sagðist þurfa og náttúrulega netið... Ásamt ótal fleiri fídusum og niðurhalanlegum forritum sem þú getur bætt við hann...
Einn frekar sniðugur innbyggður fídus fyrir business kalla er sá að þú getur tekið mynd af nafnspjaldi og síminn hendir því inn í símaskrána hjá þér, fyllir sjálfur út í rétta reiti varðandi nafn, netfang, símanúmer ofl.
Batteríið er frekar gott, hef verið tengdur 3G netinu heilu dagana (tengdur msn allann daginn) og batteríið dugar alveg.
Hér eru speccar:
http://www.esato.com/phones/index.php/phone=273
Lætur mig bara vita ef þú hefur einhverjar spurningar, er búinn að stúdera símann frekar mikið og forrit sem hægt er að fá
Annars er ég sammála einhverjum sem sagði hérna ofar að iphone er stórlega ofmetinn...
_________________
██ 1974 BMW 1802██ 1994 BMW E36 332i sedan██ 2008 BMW E92 335i██ 2013 BMW F30 320dSvezel wrote:
Þú ert svo mikill bíla-hipster að það er ekki fyndið
