bebecar wrote:Það eru hinsvegar alveg hreinar línur að það var stærri bensíntankur í þeim gamla - og það skiptir auðvitað alveg gríðarlega miklu máli![]()
Þetta er karakter spurning í raun. Kull ætti að geta svarað þessu að nokkrum mánuðum liðnum. Hinsvegar þá hefur eintakið eitthvað að segja líka og hann er augljóslega með algjört eðal eintak af E39.
Ég þarf ekki lengur að hafa með mér tímarit til að lesa meðan tankurinn fyllist eins og á gamla E34 M5, tekur sinn tíma að dæla 100L!
En vissulega á maður eftir að kynnast bílnum mikið meira, bara rétt búinn að smakka og á eftir að læra helling.





