Startvesen með 318IA E46 2004 árgerð

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Startvesen með 318IA E46 2004 árgerð

Postby Einhver » Mon 21. Jul 2008 22:34

Sælir strákar, ég er í smá veseni með bílinn minn...
Kannski kannast einhver hérna við þetta...

málið er að síðustu daga, þá hefur hann alltaf þurft tvær tilraunir til að starta sér þegar hann er búin að standa eithvað... ég semsagt sný lykklinum og það kemur straumur og allt en hann reynir ekki einusinni að starta vélinni, það semsagt gerist ekkert, ekkert klikk eða neitt, svo sný ég aðeins til baka og reyni aftur og þá rauk hann í gang...

Svo núna í dag, þá þurfti ég að reyna held ég 10 sinnum, það kom alltaf straumur á allt og þannig, en hann reyndi aldrei að starta, en svo allt í einu, þá hoppaði hann í gang..

Kannist þið eithvað við eithvað svona?
Einhver
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 3
Joined: Fri 06. Jul 2007 23:24
Location: Akureyri

Postby BMW_Owner » Tue 22. Jul 2008 00:06

er ekki bara eitthver þjófavörn í bílnum sem er að skíta ásig ? ég hef heyrt ýmsar sögur af svoleiðis veseni
:wink:
BMW 528Ia
User avatar
BMW_Owner
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1965
Joined: Sun 29. Jun 2003 16:58

Postby Dorivett » Tue 22. Jul 2008 00:08

getur verið að kolin í startaranum séu að gefa sig, þá ná þau stundum sambandi og stundum ekki.
Dorivett
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 470
Joined: Tue 11. May 2004 17:35
Location: ÚTI AÐ SPÓLA FYRIR HORN


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 15 guests