Núna er komið að því að fara í okkar núna árlegu útilegu
Síðasta útilega heppnaðist nokkuð vel en í þetta skiptið viljum við fá ennþá fleiri! Því fleiri því skemmtilegra.
Þetta verður mjög svipað og síðast. Sami staður og sama plan.
Staðurinn heitir Hvammsvík og er í hvalfirðinum á mjög fínum stað. www.hvammsvik.is
Við ætlum að hittast kl. 13:00 hjá KFC í mosfellsbæ og þaðan tökum við hóprúnt uppí Hvalfjörð. Við munum síðan keyra Hvalfjörðin og skemmta okkur pínu og við stoppum eflaust á einhverjum góðum stað og tökum gott photoshoot.
Það verða allir að koma með sinn eigin mat og drykki(lesist bjór) en krafturinn skaffar grillið og góðu stemninguna.
Menn þurfa auðvitað ekki að gista en að sjálfsögðu ætlast ég til þess að menn grípi með sér tjaldið/tjaldvagninn/húsbílinn/einbýlishúsið og gisti með okkur nóttina, það er LANG skemmtilegast!
Hvet síðan alla til að taka með sér tjaldstóla, hundleiðinlegt að geta ekki fengið sér sæti meðan maður sötrar á bjórnum/pepsi maxinu
Allir sem ætla að gista þurfa að senda mér mail á arnib11 @ gmail.com af því að ég þarf helst að vita ca. töluna á þeim sem ætla að gista.
Ég vona að ég sé ekki að gleyma neinu, ef eitthvað er óljóst ekki hika við að spurja bara
Kv. Skemmtinefndin




