Truntugangur í M50 - Vesen! En er þó að komast í lag, bls. 6

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Postby UnnarÓ » Thu 10. Jul 2008 21:53

Búið að vera meira vesenið með viðgerð á þessum..

Eins og stendur ofar í þræðinum fór bíllinn í TB og þeir segja að ventlar á cyl 2 og 3 séu brunnir.

Mér er ráðlagt af mörgum að finna bara nýtt hedd í staðinn fyrir að skipta um ventla í þessu heddi og ég geri það. Finn flott hedd á eBay í byrjun maí og kaupi það og læt senda það á klakann með ShopUsa.

ShopUsa gleymir hluta af sendingunni og þetta tefst alltsaman og ég er loksins kominn með heddið í hendurnar og allt sem því fylgir núna í lok júní.

Bifvélavirkinn sem er að laga þetta fyrir mig (slapi hér á spjallinu) kippir heddinu af áðan og segir mér að allir ventlar séu bara í stakasta lagi og það var heddpakkningin sem væri farin (og ekki í fyrsta sinn greinilega, hann sagði að þetta væri einhver algjör sóða cheap-o pakking sem væri farin að blása út á fjölmörgum stöðum).
Svo ég hefði getað sparað mér nýja heddið (og peninginn sem fór í að láta TB kíkja á þetta fyrir mig :roll:)

Þannig að bíllinn væri löngu kominn í lag ef TB hefði komið með rétta bilanagreiningu. Svekk :lol:

En allavega bíllinn verður orðinn reddí núna um helgina og kominn með læst drif í þokkabót :twisted: :) Bara verst að ég get ekkert keyrt hann almennilega næstu tvær vikur þar sem ég fer til útlanda á mánudaginn :lol:
UnnarÓ
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 444
Joined: Wed 21. Feb 2007 22:15
Location: RVK

Postby Mánisnær » Thu 10. Jul 2008 23:49

Alltaf heyrir maður nýjar sögur um TB menn - leiðinlegt að heyra! En er vagninn kominn í lag?
User avatar
Mánisnær
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1770
Joined: Tue 22. Mar 2005 12:31
Location: Vesturbæ Reykjavíkur

Postby UnnarÓ » Thu 10. Jul 2008 23:53

Mánisnær wrote:Alltaf heyrir maður nýjar sögur um TB menn - leiðinlegt að heyra! En er vagninn kominn í lag?

Gaurinn ætlar að klára þetta núna á laugardaginn, þá get ég loksins farið að krúsa aftur 8)
UnnarÓ
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 444
Joined: Wed 21. Feb 2007 22:15
Location: RVK

Postby Bjarki » Fri 11. Jul 2008 00:58

Hvernig fengu TB menn þetta út??
Voru þeir með sjónpípu að kíkja ofaní strokkana og undir ventlana í gegnum kertagötin?
Af hverja þjöppu- og lekamæla þeir ekki bara bílinn!!
A.m.k. það sem netbifvélavirkinn myndi gera :lol:

Stendur þetta á reikningnum sem þú fékkst eftir "bilanagreininguna"?
Bjarki
E39: 540iA '98
User avatar
Bjarki
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2492
Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Location: Reykjavík

Postby gstuning » Fri 11. Jul 2008 01:40

Bjarki wrote:Hvernig fengu TB menn þetta út??
Voru þeir með sjónpípu að kíkja ofaní strokkana og undir ventlana í gegnum kertagötin?
Af hverja þjöppu- og lekamæla þeir ekki bara bílinn!!
A.m.k. það sem netbifvélavirkinn myndi gera :lol:

Stendur þetta á reikningnum sem þú fékkst eftir "bilanagreininguna"?


Þetta klárlega var gisk :)
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Postby gunnar » Fri 11. Jul 2008 08:39

Ég hef iðulega tekið því sem TB hefur sagt mér með stórum fyrirvara..

En það er gott að lausn fannst á vandamálinu.... Núna áttu bara auka hedd..

Turbo! :lol:
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby UnnarÓ » Fri 11. Jul 2008 13:38

Bjarki wrote:Hvernig fengu TB menn þetta út??
Voru þeir með sjónpípu að kíkja ofaní strokkana og undir ventlana í gegnum kertagötin?
Af hverja þjöppu- og lekamæla þeir ekki bara bílinn!!
A.m.k. það sem netbifvélavirkinn myndi gera :lol:

Stendur þetta á reikningnum sem þú fékkst eftir "bilanagreininguna"?

Ég veit ekkert hvernig þeir komast að þessari niðurstöðu, ég var samt allavega ekki að borga þeim fyrir að koma með eitthvað vanhugsað gisk :?
Já, það stendur á reikningnum, „Niðurstaða: Brenndir ventlar á cyl 2 og 3.“
UnnarÓ
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 444
Joined: Wed 21. Feb 2007 22:15
Location: RVK

Postby crashed » Mon 14. Jul 2008 15:25

getur allveg pasað við þær græjur sem þeir hafa notað til að bilanagreina bílin hjá þér hugsanlega en þú átir nátúrulega að rífa heddið af bílnum þínum til að skoða og vera 100% viss um hvað væri að og hvað þig vantaði áður en þú keyftir heddið að utan
Róbert Már Róbertsson
BMW 740 E38
BMW 325 E36 "91 (SELDUR)
Gsm: 6150628
crashed
Getawaybílstjóri
 
Posts: 939
Joined: Tue 10. Jul 2007 22:13
Location: njarðvík

Previous

Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 13 guests