Rúmlega fertugur starfsmaður bílaumboðs hefur verið sektaður um 85.000 krónur fyrir að aka bifreið á 195 km/klst. hraða á Krýsuvíkurvegi í sumar, en þar er leyfilegur hámarkshraði 90 km/klst. Þá var þriggja mánaða ökuleyfissvipting af sýslumannsins hálfu staðfest.
Umrætt kvöld ók maðurinn sýningarbifreið sem bílaumboðið hafði að láni frá framleiðanda. Mun tilgangur ökuferðarinnar hafa verið að prófa afl og gæði bifreiðarinnar, sem búin er einum fullkomnasta öryggisbúnaði sem völ er á og yfir 400 hestafla vél, eins og segir í dómi Héraðsdóms Reykjaness frá því á föstudag.
...
Er einhver með eitthvað slúður um hvaða bílaumboð og bíl var að ræða?


