Ljótt lakk + dass af ryði á ódýrum winterbeater ?

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Ljótt lakk + dass af ryði á ódýrum winterbeater ?

Postby ValliB » Fri 04. Jul 2008 22:51

Félagi minn keypti 316 '92 árg. af emilth held ég.

Eftir að hafa hamast í ryðinu í einhvern tíma kom einhver snillingurinn með þá hugmynd að rúlla bara helvítis bílinn matt svartan.

Einhver tip eða fróðleiksmolar frá gaurum sem hafa einhverja hugmynd um hvað þeir eru að gera? :lol:


Hvað er svona það sem þarf að hafa í huga, hvernig málning er best og hvernig á að undirbúa þetta svo þetta komi sem best út hjá okkur o.s.fr :roll:
bmw3
User avatar
ValliB
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1070
Joined: Thu 07. Jun 2007 18:23
Location: Húsavík

Postby Los Atlos » Fri 04. Jul 2008 23:08

sprauta frekar, þið fáið aldrei góða áferð með einhverju rúlludrasli, það er til að nota á veggi, ekki bíla. Sérstaklega ekki ef að þið vitið ekki rass hvað þið eruð að gera. hægt að kaupa amatöra lakksprautu í bílanaust á einhvern 20 kall og svo er bara að kaupa venjulegt bílalakk þar. svo að fá einhvern vanann sprautara til að gluða á bílinn. jafnvel hægt að tala bara við venjulegann málara eða einhvern sem vinnur í slippnum ef að þið þekkið einhvern þannig, þarf ekkert endilega að vera einhver fancy bílasprautari til að láta þetta heppnast ágætlega.
OO=[] []=OO
BMW 525ix '95
Honda CRF 450 '05
Los Atlos
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 327
Joined: Mon 25. Sep 2006 23:23

Postby emilth » Mon 07. Jul 2008 02:35

Er ryðið semsagt svona djúpt á bílnum? Ég persónulega skoðaði það aldrei þar sem ég keypti bílinn svona, og bónaði hann nú þegar ég gat svona til að halda honum sem bestum. En ég er sammála, bara kaupa sprautukönnu og bílalakk og fá einhvern til að sprauta hann 8)
BMW 730i E32 1991
BMW 316i E36 1992 - Seldur

http://flickr.com/photos/emilth
emilth
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 209
Joined: Wed 22. Jun 2005 23:19

Postby gunnar » Mon 07. Jul 2008 09:00

Til hvers að heilsprauta samt bílinn?

Er ekki auðveldara bara að slípa niður ryðblettina og bletta aðeins í þetta ?
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby ValliB » Mon 07. Jul 2008 16:15

það er búið að bletta hann svo oft að hann er orðinn frekar sjoppulegur.

En ég er hræddur um að hann gæti orðið enn sjoppulegri ef þetta er ekki gert vel, er þá að tala um heilsprautunina
bmw3
User avatar
ValliB
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1070
Joined: Thu 07. Jun 2007 18:23
Location: Húsavík


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: Baidu [Spider] and 19 guests