Ég var með þessar felgur inni í 525ix touring bílnum mínum í Ferjuvogi og einhver bíræfinn besefi braust inn í bílinn með að brjóta hliðarrúðuna að framan í honum. Greip svo felgurnar mínar (og dekkin á þeim) með sér.
Ég er nokkuð viss um að þetta hafi gerst í nótt (aðfaranótt 2 júlí), en gæti þó hafa gerst 1-2 nóttum fyrr.
Þetta eru einu felgur sinnar tegundar á landinu svo það væri gaman að fá að vita ef þið sjáið þessar felgur á ferðinni. Ætti ekki að vera erfitt að finna sökudólginn ef hann spókar sig um á þessum hér á landi.
Nú en ef þið sjáið þetta, þá er bara að hringja í lögregluna eða mig 699-2268. Þá áttu mig fyrir besta vin næst þegar þig vantar varahlut í BMW-inn þinn heim frá útlöndum



