by Þórður Helgason » Thu 12. Dec 2002 22:48
Jæja, við setjum upp þráð fyrir bíladagana á Akureyri
eftir áramótin.
Sem stendur er ekkert sem bendir til annars en að það verði götuspyrna,
burnout keppni, sýning og Auto-X á bíladögum á Akureyri 2003.
Stundum hefur verið líka go-kart keppni og motocross sömu daga.
Sýningin hefur verið fastur liður síðan 1974, og alltaf á sama stað.
Á hana komast sérvaldir, glæsilegir bílar og sérkennilegir. Það er alveg klárt að fínir Bimmar eins og sexan hans Sæma á heima á henni, og örugglega fleiri hér á þessum vef.
Slysið í fyrra var hörmulegt, en drengurinn hefur náð sér ótrúlega, og var farinn að ganga í ágúst held ég. Við höfum þó ekki heyrt í honum um tíma núna.
Þórður Helgason í stjórn Bílaklúbbs Akureyrar.
2002 árg 1969 rip
2002 árg 1971 rallýbíll (læknabíllinn) rip?
2000CA árg 1968 í langtímahvíld.
735i árg 1980 seldur.
318i árg 1989 seldur.
540i árg 1996. Frábær vagn. Seldur.