Líf eftir ML

Hér skal spjalla um BMW.

Líf eftir ML

Postby bjarkovic » Sun 29. Jun 2008 23:51

Ath. Þessi þráður er líka á www.blyfotur.is, en ég vil endilega fá innlegg frá Kraftafólkinu.

Þannig er staðan að ég er að fara að uppfæra bílinn minn. Ég er með Mercedes Benz ML 320 árgerð 2000 (sem er einmitt til sölu á þessum vef). Þessi bíll hefur reynst einstaklega vel, en við hjónin erum þó sammála um að yngja aðeins upp og fá okkur eitthvað skemmtilegt. Við viljum ekki eldri bíl en 2004, en strax eftir það greinir okkur á um hvað við viljum kaupa. Draumurinn okkar er bara ML í nýja boddíinu (seint 2005 eða síðar) en þeir eru samt of dýrir fyrir okkur ennþá. Kannski næst. Hvað á að gera í millitíðinni?

Ég byrjaði á að skoða Touareg. Þeir eru mjög skemmtilegir, en þeir sem líta vel út eru V8 bílarnir. Ég er alveg til í V8 bíl, en ég hef heyrt draugasögur af þessum bílum. Rafkerfi, loftpúðafjöðrun og einstaklega óhófleg bensíneyðsla í V8 bílunum eru að draga úr þeim kosti.

Áður hafði ég skoðað Jeep Grand Cherokee. Mér finnst þeir í grunninn frekar flottir, en innréttingarnar eru kannski helst til plastlegar og standard felgur t.d. ekkert mjög spennandi. Laredo bílarnir finnst mér lítt spennandi þannig að Hemi kemur til greina, nema hann eyðir víst sjaldan undir 20. Endilega leiðréttið mig ef þið vitið betur.

Svo kom allt í einu hringing sem heillaði mig óvænt. Bílar sem ég hef aldrei skoðað (enda of dýrir). Porsche Cayenne. Þá er einn slíkur á sölu, S bíll (aftur V8, sem kemur mögulega til greina. Þótt Cayenne og Touareg byggi á sömu grind, þá hefur mér reyndar þótt Touareg heldur fallegri ef eitthvað er. En Cayenne bíllinn er þó virkilega skemmtilegur, mjög huggulega farinn og fínn go það sem kom mér mest á óvart er eyðslan. Þegar ég sótti bílinn til prufu stóð meðaleyðslan í 14.2 á hundraðið. Ég keyrði hann í tæpa klukkustund og þegar ég skilaði honum á planið stóð 14.3 á tölvunni. Ekki slæmt það! Það má alveg verða ögn meira fyrir þessa vél, þess vegna.

Þá kemur skoðun konunnar. Hún vill CR-V. Ouch. Fínir bílar og allt það, en þegar þið sjáið hvað ég hef verið að skoða, þá má skilja hve mig verkjar í sálina þegar þessi kemur til tals. Hann er sparneytinn, praktískur, plastlegur og karakterslaus.

Hvað finnst ykkur? Hver er ykkar reynsla?

Endilega póstið!

Kv,
Bjarki
bjarkovic
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 7
Joined: Tue 07. Feb 2006 12:49

Postby IceDev » Mon 30. Jun 2008 00:02

Ég kem með klassíska BMWkraftssvarið


X5 eða þá...ugh....X3

Mjög áræðanlegar vélar
Lág bilanatíðni
Ágætis framboð
Last edited by IceDev on Mon 30. Jun 2008 00:04, edited 2 times in total.
IceDev
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3976
Joined: Sun 29. Feb 2004 03:40

Postby Geirinn » Mon 30. Jun 2008 00:03

IceDev wrote:Ég kem með klassíska BMWkraftssvarið


X5


Þú ert ekki að hjálpa honum neitt nema að rökstyðja svarið.
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR
User avatar
Geirinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2399
Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28

Postby bjarkovic » Mon 30. Jun 2008 00:15

Mér finnst X3 reyndar svo ljótir að ég held að ég færi jafnvel frekar í CR-V. Ég haf alltaf verið veikur fyrir X5, reyndar. Það er samt ekkert ægilegt framboð á þeim á þokkalegum verðum - ég er til í að skoða öll tilboð ef einhver er að reyna að skipta... :wink:

En ég er líka bara forvitinn að heyra reynslusögur? Hverjir hafa átt X5? Hvað hefur verið að klikka? Eða ekki að klikka? Ég er frekar smeykur við Touareg eftir að hafa heyrt um rafkerfisbilanir, loftpúðavesen o.fl. Kannski er það bara bull líka.

B.
bjarkovic
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 7
Joined: Tue 07. Feb 2006 12:49

Postby Axel Jóhann » Mon 30. Jun 2008 02:08

Hvað er að Range Rover? :)
Axel Jóhann Helgason. S. 695-7205


E34 Touring
Musso 2.9TDi

Image
User avatar
Axel Jóhann
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9115
Joined: Wed 14. Dec 2005 19:56
Location: Breiðholt, Reykjavík

Postby bjarkovic » Mon 30. Jun 2008 07:45

Seg þú mér! Ég er til í að skoða það líka. Er rafkerfið þar ekki samt einhver akkilesarhæll? Hver er reynslan af þeim? Viðhald og eyðsla?
bjarkovic
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 7
Joined: Tue 07. Feb 2006 12:49

Re: Líf eftir ML

Postby SteiniDJ » Mon 30. Jun 2008 09:35

bjarkovic wrote:Hvað finnst ykkur? Hver er ykkar reynsla?

Endilega póstið!

Kv,
Bjarki


Pabbi átti 2003 X5 4.4i sem hann keypti á Heimsbílum. Við áttum bílinn í "langan" tíma (2 - 3 ár ef ég man rétt) og ég held að eina bilunin sem ég man eftir var þetta skemmtilega pixel vandamál. Bílinn var með US rafkerfi og strákarnir í B&L voru því frekar langan tíma að koma kúlunni undir bílinn, enda höfðu þeir ekki gert þetta áður á þetta rafkerfi. Þessi bíll þurfti ekki mikið viðhald, en þó eitthvað - sem kemur ekki á óvart. Eyddi ca. 18l/100 innanbæjar við hressilegan akstur, en getur farið yfir 20l/100 ef ökumaður er í virkilega góðu skapi. :) Algjör snilldar bíll!

Eftir að við seldum hann fengum við okkur nýlegan Range Rover Sport HSE. Það var nú meira draslið, þessi bjó bókstaflega uppi á verkstæði og það sem fyllti mælinn var þegar hann fór að pústa framhjá, þá var ákveðið að fá sér nýjan X5 sem er betri en sá fyrri, og þá er verið að segja mikið.

Það er mjög mikið til af eldri X5 á heimskulega góðu verði, farðu á bilaland.is og skoðaðu PZ866 (2003 4.6i X5) sem dæmi, ég held að þeir gerist ekki betri.
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Postby BlitZ3r » Mon 30. Jun 2008 12:29

Faðir minn á 2005 árg af Jeep Grand Cherokee. ókei innréttingin er soldið
slöpp í gæðum og þetta er soldið svagt enda amerískur bíll, þeir eru allir
þannig. En hann er með öllu NEMA hemi vélinni s.s 4.7l V8 sem skilar í
kringum 240hp. Flott orka og hljóðið er með því fallegra sem ég hef heyrt úr
v8 en aldrei of hátt bara mjög nett. græjunar eru orginal frá alpine og infiniti
hátlarar. mjög flott hjóð úr því. Það eina sem mér fynst vanta í svona bíla er
rafmagnsstýri en það er ekki til í þeim og það eina sem er ekki rafmagn í. Snilldar krúser.


Kanin hefur komið langa leið frá gömlu mublunum sínum. eyðslan á honum er í kringum 23l en við erum í eyjum og hér eyða allir bílar fáranlega miklu.

er í mikluminna á fasta landinu

Og ekki skemmir fyrir að þeir eru oft talsvert ódýrari en stóru þýsku vagnarnir
Björgvin Hlynsson. S.6636835
Bmw E34 525iXa '94
MMC Pajero 2.8tdi '96
Ducati 999s '05 Monoposto
BlitZ3r
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 419
Joined: Sat 23. Oct 2004 01:00
Location: Vestmannaeyjar

Postby zazou » Mon 30. Jun 2008 12:56

Ég átti RR með 3.0 BMW dísil, geggjaðir bílar. Örugglega hægt að fá þá á flottum verðum í dag. Þurfti þó að punga út 90k fyrir einn fokkíng ABS skynjara :!:
Brynjar
Alfa Romeo 159

Gamalt:
Jaguar XJ8
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign

Vísitölubílar eru SATANS
User avatar
zazou
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2610
Joined: Sat 01. Nov 2003 13:43
Location: London

Postby íbbi_ » Mon 30. Jun 2008 14:11

ég er búinn að prufa alla þessa $$$ jeppa og keyri flesta þeirra daglega,

þægilegustu bílarnir að mínu mati eru ML og GL bílarnir frá benz, ísetan, fjöðrun sæti og flr eru með því þægilegasta sem ég hef prufað,

ég persónulega færi í slíkan bíl, og tæki hann 320cdi m/sportpakka,

toareg bílana fíla ég vel, sparibíll á eflaust einn loadaðasta toareq sem ég hef séð með R5 diesel, v8 bílarnir bryðja skiptingar, bilanatíðni á toareq er yfir meðallagi, meirasegja samanborið við þýskan bíl,

X5 er brilliant bæði gamli og nýji, ótrúlega þéttir og solid bílar, hafa áberandi betri aksturseiginleika á mikilli ferð heldur en allir nema cayanne,

cayanne = bestur, turbo og S bílarnir eru bara brill, ég myndi reyna halda mig frá 03/04, innrétingarnar eru eins en úr ódýrari efnum sem var breytt v/kvartana, lang skemmtilegustu bílarnir af þessu,

RR=stórt virðulegt og þægilegt, bilanatíðni skelfileg, en hún er það sömuleiðis á öllu jeppunum sem þú ert búinn að telja upp, að keyra stóra RR er mjög valdsmannslegt, sportinn er i.m.o ekki jafn skemmtielgur bíll, en poser factorinn er mikill
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Postby bjarkovic » Mon 30. Jun 2008 14:17

SteiniDJ, þessi BMW X5 á Bílalandi er virkilega fallegur. Verst að það er ekki stórkostlegur kostur að láta bíla uppí hjá umboðum, en ég ætla að heyra í þeim og kíkja aðeins á hann.

Íbbi, takk fyrir þessa útlistun. Gaman að heyra þetta frá einhverjum sem er í þessum runum daglega. Ég gæti alveg hugsað mér þennan.

http://v1.bilasolur.is/Car.asp?show=CAR ... _ID=178622

Hér er einn sem ég hef verið að skoða (sem dæmi).

Kv,
Bjarki
bjarkovic
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 7
Joined: Tue 07. Feb 2006 12:49

Postby FinnurKarls » Mon 30. Jun 2008 14:36

mér finnst RR sport mun skemmtilegri heldur en stóri, í vissum tilfellum,, til dæmis betri í beygjum og öllu svoleiðis en hinn er mun skemmtilegri uppá krúsið að gera og þú ert ,,,,, BIG BOSS ,,,, á stórum range rover supercharged,,,,, en athugaðu að V8 díselvélarnar eru ekki að eyða neinu hjá þeim en samt hrikalega skemmtilegt tog í þeim,,,, myndi ekki gera neitt án þess að prófa þessa bíla allavegana
E30 325 '89 M-Tech 2--- VR-718,, í vetrardvala:)
FinnurKarls
Kassabílstjóri
 
Posts: 217
Joined: Sun 03. Feb 2008 22:04
Location: Árbær

Postby SteiniDJ » Mon 30. Jun 2008 15:16

bjarkovic wrote:SteiniDJ, þessi BMW X5 á Bílalandi er virkilega fallegur. Verst að það er ekki stórkostlegur kostur að láta bíla uppí hjá umboðum, en ég ætla að heyra í þeim og kíkja aðeins á hann.


Þessi X5 er svart gull. :) Við höfum skipt mikið við B&L og þeir eru mjög sanngjarnir í uppítökum, klassa lið þarna.
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Postby Thrullerinn » Mon 30. Jun 2008 15:18

Bíddu þar til í haust, gætir fengið góðan jeppa á góðu verði.
Annars er eru X5 og Cayenne ekki miklir jeppar sem slíkir hér á Íslandi.

Mín reynsla af jeppum þá er þungt að reka þá.. :?
(þegar litið er á bensínmælinn þ.e.a.s. :) )
Carrera4 964 '91
User avatar
Thrullerinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4108
Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Location: 101

Postby Lilja » Mon 30. Jun 2008 15:25

SteiniDJ wrote:
bjarkovic wrote:SteiniDJ, þessi BMW X5 á Bílalandi er virkilega fallegur. Verst að það er ekki stórkostlegur kostur að láta bíla uppí hjá umboðum, en ég ætla að heyra í þeim og kíkja aðeins á hann.


Þessi X5 er svart gull. :) Við höfum skipt mikið við B&L og þeir eru mjög sanngjarnir í uppítökum, klassa lið þarna.


Ég verð að vera ósammála, finnst þeir alltaf nefna svívirðilegar tölur.
Skáeigandi e30
Image
User avatar
Lilja
Kassabílstjóri
 
Posts: 221
Joined: Sun 12. Aug 2007 21:22
Location: Reykjavík beibí

Next

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 23 guests