Gamli startarinn var með 3 kringlóttum tengjum með róm, eitt stórt sem báðir þykku kaplarnir fóru í og síðan fóru litlu vírarnir í sitthvort minna tengið.
Nýi startarinn er aftur á móti bara með tveimur kringlóttum tengjum (stórt og lítið) og tveimur flatpinnatengjum (eða hvað sem þau kallast
Annar litli vírinn passar ekki á minna kringlótta tengið þar sem gatið á vírnum er of mjótt.
Litli vírinn sem ég næ ekki að tengja er grænn og svartur.
Veit einhver hvernig ég get tengt þetta eða fyrir hvað græni/svarti vírinn er?



