Jæja, bíllinn kominn saman og til akureyrar.
Þetta byrjaði með svaka stemmingu þegar það vantaði demparapumpuna en það reddaðist á endanum. Í nótt þá röðuðum við dótinu saman og stundum var ég svona við það að gefast upp, td. þegar við vissum ekki hvernig sílsarnir sneru
Þetta reddaðist þó allt á endanum hjá okkur strákunum og Ingu.
Í morgun þá skipti ég um olíu, síu og kerti og lét svo vaða í skoðun, þá fékk ég fagurgrænann endurskoðunar miða útaf bensínleka. Því var reddað og skulda ég Dóra Porsche feitann greiða fyrir hjálpina!
Það er líka búið að smíða nýtt púst alveg frá flækjum, 2x2" með túpum, hljómar virkilega flott, mjög svipað hljóð og var í CABRIO fyrir s38 swap.
Nú erum við komnir á ak, búnir að koma okkur fyrir í íbúðinni og bílllinn "glansandi" og fínn fyrir utan...
Tókum smá sýnishorn áðan, reyni að koma með betri myndir á morgun.
Hann er semsagt matt svartur. Svart lakk og mött glæra yfir.
Nú ætla ég að klæða mig í flame gallann og þið megið láta vaða og segja hvað ykkur finnst
