Maðurinn, sem handtekinn var, hafi verið búin að ganga um og berja fólk og ógna því áður en lögregla var kölluð á vettvang. Þá hafi hann ekki hlýtt fyrirmælum lögreglu er hún kom á staðinn og sýnt skýran vilja til að berja á lögreglunni.


saemi wrote:Ekkert að þessu.
Maðurinn fékk skýr fyrirmæli um að leggjast á jörðina oftar en einu sinni og fór ekki eftir þeim.
Hann fékk líka viðvörun um að gas væri á leiðinni.
Það er eins og almenningur haldi að þeim beri ekkert að fylgja fyrirmælum lögreglu. Að það sé réttur okkar til að ræða við lögregluna út í eitt og standa uppi í hárinu á henni. Íslendingar eru agalausir og kunna ekki að fylgja fyrirmælum. Það er bara sorglegt. Ekki skrýtið hvernig umferðarmenningin hér á landi er.
bjahja wrote:Ég neita því að fólk fari að kvarta yfir einhverju svona
Ég var að misbjóða sjálfri mér með því að horfa á myndbandið frá Patreksfirði þegar lögreglan gasaði mann sem hafði verið með ólæti. Hann neitar að leggjast á jörðina og gengur frá lögreglumönnunum. Þá sprauta þeir á hann.
Ég á ekki eitt einasta orð. Hvers lags þjóðfélag er þetta að verða? Það er ekki nýtt að drukkið fólk sé með ólæti en hingað til hefur ekki þurft að sprauta eitri í augu þess til að ná að handtaka það.
Ég sé enga ofbeldistilburði í garð lögreglunnar frá þessum manni. Það er enginn yfirvofandi árás í gangi og maðurinn gengur frá löggunni.
Svo þjösnast þeir á honum þrír þar sem hann liggur hjálparvana á jörðinni.
Fyrirgefið á meðan ég garga mig hása.
Og á eftir fylgdu 20 tímar í fangelsi.
Ekkert réttlætir svona aðgerðir. Fjandinn hafi það.
Og lögreglustjórinn á Patreksfirði réttlætir ofbeldið og sér ekkert athugavert við þennan gjörning valdstjórnarinnar.
Þetta er pjúra fasismi og ekkert annað.
69.is wrote:Löggan meisar alveg pollrólegan gæja, sem trompast við það

Hann er búinn að byðja þriðja lögregglumanninn um að fara frá sér


Users browsing this forum: No registered users and 9 guests