Djöö
Fór með bílinn í skoðun áðan en því miður þá náðu þeir ekki að klára að skoða bílinn vegna þess að hann of-hitnaði í mengunarprófinu og allt vatn fór af bílnum (sprengdi expansion tankinn).
Ég náði að koma bílnum heim með mörgum stoppum. Bíllinn hegðar sér alveg eðlilega nema það að vatnið fer af.
Ég er samt svolítið hræddur um að bíllinn hafi ofhitnað nægilega til að heddpakkning hafi skemmst, en bíllinn er samt annsi eðlilegur miðað við það.
Grunar að orsök sé slöpp viftukúpling þar sem að bíllinn hefur alltaf verið eðlilegur hjá mér. Líklegast ekki verið nógu góð þegar bíllinn var kominn inn og verið að þenja hann án "loftkælingar".
Held ég ætli að prófa að skipta um, vatnskassa (expansion dæmið fast við), vatnsdælu og viftukúplingu og láta svo reyna á það hvort ég hafi sloppið. Verst að skoðunin rennur út í dag...
Mjög fúllt þar sem að maður er ekki sá ríkasti (vegna unaðslega asnalegs kerfis hjá LÍN

)