Jæja, þetta var ágætis dagur. Byrjuðum frekar seint þar sem Hr. X
var að túristast - skoðaði Gullfoss, Geysi, Þingvelli, etc.
Tókum 3 bíla í dag og enduðum á Suprunni. Byrjuðum á henni í gær
en þar sem það var nú frekar blautt var ekki hægt að klára.
Fórum út á kvartmílubraut til að klára mappið fyrir venjulegt bensín
auk þess að mappa fyrir race fuel.
Nokkur rönn tekin á venjulegu:
Í support bílnum leyndust þónokkrir lítrar af 119 oktana bensíni:
Danni að fylla á með 119 okt:
Held að þetta sé á 450 kall líterinn
Bíllinn strumpaðist hressilega áfram á þessu:
Það voru tekin þónokkur rönn til að stilla alla mögulega og ómögulega
hluti af. Ótal stört æfð og launch control og power í mismunandi gírum
stillt. Var farinn að hooka vel af stað.
Hér er herra Vallifudd að fá að fara eitt rönn:
Fékk sjálfur að sitja í og get alveg sagt að þessi rokkur virkar bara vel
