[OT] Ísbjörn

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Postby E55FFFan » Tue 03. Jun 2008 18:01

..
E55FFFan
Getawaybílstjóri
 
Posts: 559
Joined: Tue 09. Oct 2007 20:23
Location: Halfpriceland

Postby Eggert » Tue 03. Jun 2008 18:04

moggabloggari wrote:Ég á ekki orð til að lýsa undrun minni yfir úrræðaleysi Þórunnar Sveinbjarnardóttur og lögreglustjóra þess svæðis þar sem ísbjörninn var felldur í dag. Það er einmitt á svona stundum þar sem reynir á hversu snjöll viðkomandi yfirvöld eru í að setja sér markmið og ná þeim. Þórunn vísar í áætlanaskort, dæmigerð tískubóla nútíma "stjórnamálamanns" - allt þarf að gera samkvæmt einhverri áætlun eða henda málum fyrir nefndir. Af hverju gat konan ekki sett sér það markmið að bjarga þessum ísbirni og hætta ekki fyrir en það mál var í höfn. Jafn ömurlegt þykir mér að horfa á þá menn sem stillt hafa sér upp við bjarnarhræið og grobba sig af því að hafa fellt það.

Dýravernd á Íslandi er allt að því engin og dýraverndunarlögum er illa fylgt eftir um það eru mörg dæmi.

Í ríkisstjórninni er heill dýralæknir því miður ráðherra sem aldrei á sínum ferli sem "stjórnmálamaður" hefur nokkurn tíma beitt sér fyrir neinu sem við kemur dýravernd, það er hann Árni Matt.

Ég segi, sem margir aðrir, ég skammast mín fyrir að vera Íslendingur á svona stundum.
E53 X5 4.4i
User avatar
Eggert
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3878
Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Location: Mosó city

Postby SteiniDJ » Tue 03. Jun 2008 18:12

Þetta eru engin gleðitíðndi, en ætli tóninn í þessari umræðu væri ekki öðruvísi hefði hann drepið eitthvern. Svo er þetta langt frá því að vera einsdæmi, afhverju ekki að hafa öll nauðsynleg verkfæri sem þarf til að hemja svona dýr til staðar?

Íslendingar , pfff...
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Postby basten » Tue 03. Jun 2008 18:14

Það er merkilegt hvað margir eru búnir að tjá sig um þetta mál á hinum ýmsu síðum og flestir virðast ekki hafa hugsað málið til enda og talið að dýrið hafi verið skotið bara upp á fjörið.

Fyrir það fyrsta þá er hvítabjörninn eitt það grimmasta rándýr sem lifir villt á jörðinni í dag. Þar sem dýrið var skotið var stutt í þéttbýliskjarna eins og Blönduós, Skagaströnd og Sauðárkrók. Hvað ef lögreglan hefði týnt dýrinu þarna og það horfið inn í þokuna? Þá væri enn verið að leita að dýrinu og fólk alveg brjálað yfir því að það hafi ekki verið skotið á meðan færi gafst. Hugsa að álit fólks á lögreglunni væri ekki uppá marga fiska ef svo dýrið hefði skyndilega birst á einhverjum þessara þéttbýliskjarna eða bara á bóndabæ og ráðist þar á mannfólk og drepið það.

Margir tala um að ekkert mál hafi verið að deyfa dýrið. Fyrir það fyrsta þá var ekki tiltæk deyfibyssa í nágrenninu og ekki víst að það væri tími til þess að hinkra eftir deyfibyssu í 2 klukkutíma þar sem björninn er fljótur yfir ef hann fer af stað, hvað þá ef hann týnist í þokunni. Hvað ætti svo að gera við dýrið þegar búið væri að svæfa það? Hvar er búr fyrir svona skepnu? Hvað ef dýrið vaknar þegar búið er að svæfa það? Hvert á að flytja dýrið? Hvað á svo að gera við það? Það er heldur ekki sama hvert farið er með dýrið og því sleppt.

Í Noregi eru ísbirnir skotnir ef þeir sjást í landi. Á Svalbarða, þar sem ísbirnir eru landlægir, eru þeir hræddir á brott ef þeir koma nálægt byggð. Ef sami björn kemur aftur nálægt byggð eftir að hafa verið rekinn á brott þá er hann drepinn.

Ísbirnir eru virkilega falleg dýr en þeir eru bara stórhættulegir og mjög grimmir. Ekki vildi ég vita af einum slíkum á vappi nálægt mínum heimkynnum.
Siggi
basten
Getawaybílstjóri
 
Posts: 860
Joined: Sat 16. Nov 2002 04:45
Location: Reykjavík

Postby Einarsss » Tue 03. Jun 2008 18:20

hefði verið hægt að komast hjá því að drepa hann ...

Hugsa að hann hafi verð drepinn til að láta mynda sig á þessari mynd

Image

gaurinn í camo jakkanum alveg með badboy svipinn á hreinu
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Postby Kristjan » Tue 03. Jun 2008 18:38

Það sást alveg langar leiðir að það hlakkaði alveg í þessum veiðimönnum -

hvers vegna svona marga?

Er ekki bara einn nógu góður í þetta?
Enginn BMW
User avatar
Kristjan
Formúlubílstjóri
 
Posts: 8507
Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Location: 101 RVK

Postby SteiniDJ » Tue 03. Jun 2008 18:44

Kristjan wrote:Það sást alveg langar leiðir að það hlakkaði alveg í þessum veiðimönnum -

hvers vegna svona marga?

Er ekki bara einn nógu góður í þetta?


Auðvitað, er þetta ekki bara sport hjá þeim?
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Postby basten » Tue 03. Jun 2008 18:48

Er ekki betra að hafa fleiri en einn ef svo ólíklega vildi til að vopnið myndi klikka? Líka ef það þyrfti að fara að elta dýrið, þá er betra að hafa nokkra vopnaða.
Siggi
basten
Getawaybílstjóri
 
Posts: 860
Joined: Sat 16. Nov 2002 04:45
Location: Reykjavík

Postby saemi » Tue 03. Jun 2008 18:54

basten wrote:Það er merkilegt hvað margir eru búnir að tjá sig um þetta mál á hinum ýmsu síðum og flestir virðast ekki hafa hugsað málið til enda og talið að dýrið hafi verið skotið bara upp á fjörið.

Fyrir það fyrsta þá er hvítabjörninn eitt það grimmasta rándýr sem lifir villt á jörðinni í dag. Þar sem dýrið var skotið var stutt í þéttbýliskjarna eins og Blönduós, Skagaströnd og Sauðárkrók. Hvað ef lögreglan hefði týnt dýrinu þarna og það horfið inn í þokuna? Þá væri enn verið að leita að dýrinu og fólk alveg brjálað yfir því að það hafi ekki verið skotið á meðan færi gafst. Hugsa að álit fólks á lögreglunni væri ekki uppá marga fiska ef svo dýrið hefði skyndilega birst á einhverjum þessara þéttbýliskjarna eða bara á bóndabæ og ráðist þar á mannfólk og drepið það.

Margir tala um að ekkert mál hafi verið að deyfa dýrið. Fyrir það fyrsta þá var ekki tiltæk deyfibyssa í nágrenninu og ekki víst að það væri tími til þess að hinkra eftir deyfibyssu í 2 klukkutíma þar sem björninn er fljótur yfir ef hann fer af stað, hvað þá ef hann týnist í þokunni. Hvað ætti svo að gera við dýrið þegar búið væri að svæfa það? Hvar er búr fyrir svona skepnu? Hvað ef dýrið vaknar þegar búið er að svæfa það? Hvert á að flytja dýrið? Hvað á svo að gera við það? Það er heldur ekki sama hvert farið er með dýrið og því sleppt.

Í Noregi eru ísbirnir skotnir ef þeir sjást í landi. Á Svalbarða, þar sem ísbirnir eru landlægir, eru þeir hræddir á brott ef þeir koma nálægt byggð. Ef sami björn kemur aftur nálægt byggð eftir að hafa verið rekinn á brott þá er hann drepinn.

Ísbirnir eru virkilega falleg dýr en þeir eru bara stórhættulegir og mjög grimmir. Ekki vildi ég vita af einum slíkum á vappi nálægt mínum heimkynnum.


NÁKVÆMLEGA.

Þetta er nákvæmlega það sem ég vil meina. Ég held að þeir sem eru að segja að það hafi ekki verið nauðsyn að skjóta hann hafi ekki hugsað þetta til enda.

Þeir sem vilja meina að það hafi ekki þurft að skjóta hann, þeir mættu svara þessum spurningum með úrræðum sem voru til taks í dag áður en farið er að tala um hvað þetta hafi verið mikill óþarfi.

Auðvitað er leiðinlegt að þurfa að aflífa svona dýr, en ég er ekki tilbúinn til að eyða milljónum í viðbragðsáætlun og viðbrögð við svona löguðu sem gerist kannski á hvað, 100 ára fresti?

Peningum skattborgarana er betur varið með að bíta í það súra og gera eins og var gert í dag í stað þess að hafa tilbúið allt og senda þyrlu norður með manni og deyfilyfjum, búri, flytja hann, fóðra hann bla bla bla bla.
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby saemi » Tue 03. Jun 2008 18:55

basten wrote:Er ekki betra að hafa fleiri en einn ef svo ólíklega vildi til að vopnið myndi klikka? Líka ef það þyrfti að fara að elta dýrið, þá er betra að hafa nokkra vopnaða.


Word!
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby saemi » Tue 03. Jun 2008 19:00

Er allir hérna orðnir kellingar... hætti að hugsa rökrétt og ofur-viðkvæmir með engin úrræði eða úrræði sem eru ekki í boði?


"Eigum við að gera þetta eða þetta. Nei, ég vil gera þetta. Já en það er ekki hægt, það er bara hægt að gera annaðhvort af þessu. Nei, ég sætti mig ekki við það, ég vil gera eitthvað annað. Já en það er bara ekki hægt. Ég vil það samt. Komdu þá með tillögu um hvað á að gera sem hægt er að gera. Ég veit það ekki, ég veit bara að ég vil ekki gera annaðhvort af þessu."


:lol:
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby Kristjan » Tue 03. Jun 2008 19:02

Það er samt ekki hægt að horfa framhjá því að þetta er dýr í útrýmingarhættu. Það finnst mér allaveganna.
Enginn BMW
User avatar
Kristjan
Formúlubílstjóri
 
Posts: 8507
Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Location: 101 RVK

Postby jon mar » Tue 03. Jun 2008 19:07

Hætta þessu kerlingarvæli, þetta var leiðin sem var valin í þetta skipti og það búið og gert.......


Egilstaðir og Skagafjörður eru ekki beint í 10min fjarlægð frá hvor öðru og hefði tekið alltof langan tíma að fá deyfibyssuna á staðinn. Spurning hvort að kvikindið hefði ekki bara skelt sér í matartíma á krókinn eða eitthvað á meðan.
Jón M
S: 693-9796
WET Motorsport - Vara og aukahlutir í bíla, vélar og tæki

Ford Bronco '66

Bara station bílar, enginn BMW.
jon mar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3213
Joined: Sun 18. Apr 2004 14:05
Location: Akureyri

Postby saemi » Tue 03. Jun 2008 19:07

Kristjan wrote:Það er samt ekki hægt að horfa framhjá því að þetta er dýr í útrýmingarhættu. Það finnst mér allaveganna.


Úrræði :wink:
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby Kristjan » Tue 03. Jun 2008 19:08

saemi wrote:
Kristjan wrote:Það er samt ekki hægt að horfa framhjá því að þetta er dýr í útrýmingarhættu. Það finnst mér allaveganna.


Úrræði :wink:


Ekkert mál samt að skella honum í frystigám og láta stoppa hann upp, það er örugglega ókeypis :wink:
Enginn BMW
User avatar
Kristjan
Formúlubílstjóri
 
Posts: 8507
Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Location: 101 RVK

PreviousNext

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 61 guests