[OT] Ísbjörn

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

[OT] Ísbjörn

Postby Stanky » Tue 03. Jun 2008 16:20

http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/0 ... vitabjorn/

Enn og aftur skítur lögreglan í skó. Djöfull eru þeir búnir að fylla mörg pör.

Þetta er ómennska.

Bananalýðveldið Ísland.

Þessir sveitadurgar hafa haft gaman af því að geta loks mundað byssurnar með flottu kíkjunum.... geta þeir ekki skotið hvorn annan eða áldósir?

Það er einsog það sé önnur menning úti á landi en í siðmenningunni í Reykjavík.
Stanky
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2026
Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51

Postby Geirinn » Tue 03. Jun 2008 16:22

Ég er ekki meðlimur Green Peace en mér finnst þetta vera að drepa "afþvíbara".
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR
User avatar
Geirinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2399
Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28

Postby bjahja » Tue 03. Jun 2008 16:22

Þetta er fáránlegt, björninn var víst farinn að ógna fólki...........en samt skutu þeir hann af því hann var að fara uppí fjall og þeir voru hræddir um að týna honum.
Fáránlegt.
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Postby Steinieini » Tue 03. Jun 2008 16:23

......
Last edited by Steinieini on Tue 03. Jun 2008 23:49, edited 1 time in total.
E39 530D ///M Sport
User avatar
Steinieini
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1905
Joined: Mon 22. Nov 2004 13:31
Location: RVK

Postby Stanky » Tue 03. Jun 2008 16:30

Hefði verið gott international stunt að fá headlines úti "Iceland saves a dying species - POLAR BEAR KNÚTUR"

Svona til að vega upp á móti hvaldrápunum :)
Stanky
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2026
Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51

Postby Stanky » Tue 03. Jun 2008 16:41

Hahahahaha - Baggalútur góðir :)

Þú komst yfir hafið á heiðskírum degi
á hreina Íslands jörð
úr nístingsköldum norðurvegi
að nema Skagafjörð.

Þú stikaðir frjáls um fjallanna sali
um fagra Íslands grund;
velkominn gekkstu um grösuga dali
– gleymdir þér um stund.

Þú örmagna, máttfarinn, lagðist í laut
á ljúfri Íslands fold
uns kyrrðin dreif þig í draumanna skaut
í dúnmjúkri gróðurmold.

Þar sáu þig tortryggnir blauðgeðja bændur
– þeir byggja Íslands lönd.
Vitstola hringdu í vopnfæra frændur
sem vildu þig þegar í bönd.

Þeir umkringdu þig, sem þekktir ei hlekki
en þvældist um íslenskt hlað.
Þeir skelfast frelsið sem skilja það ekki
– og skjóta í hjartastað.
Stanky
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2026
Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51

Re: [OT] Ísbjörn

Postby E55FFFan » Tue 03. Jun 2008 16:49

hálfvitar
E55FFFan
Getawaybílstjóri
 
Posts: 559
Joined: Tue 09. Oct 2007 20:23
Location: Halfpriceland

Postby IngóJP » Tue 03. Jun 2008 16:49

Þetta þykir mér alveg fáranlegt. Hefði ekki verið nær að svæfa dýrið bara. Eða búum við ekki yfir þessum deyfi pílum sem allar aðrar þjóðir virðast eiga
Suzuki Sidekick 33" 1977
User avatar
IngóJP
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2847
Joined: Wed 22. Mar 2006 02:34

Postby arnibjorn » Tue 03. Jun 2008 16:52

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/20 ... a_veginum/

Egill segist hafa komið á staðinn en þá var búið að fella ísbjörninn. Hann segir það rangt að ekki sé til deyfilyf í landinu, líkt og umhverfisráðherra, Þórunn Sveinbjarnardóttir, sagði í samtali við mbl.is. „Ég er meira að segja með deyfilyf í bílnum hjá mér og það er til deyfibyssa hjá dýralækninum á Egilsstöðum. Ef hún hefði verið send með flugi þá hefði byssan verið komin á staðinn eftir klukkustund," segir Egill í samtali við mbl.is.

Egill segir að ekki hafi verið vandasamt að útbúa gildru þar sem hægt hefði verið að lokka dýrið inn í. Þrátt fyrir að hann hafi ekki verið með byssuna með sér þá hefði verið hægt að setja deyfilyfið í æti enda ísbjörninn að öllum líkindum svangur.


Algjör óþarfi að skjóta dýrið finnst mér
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Postby Brútus » Tue 03. Jun 2008 17:03

Ef að hann hefði ráðist á einhvern þá hefðu allir vælt yfir því að hann hefði ekki verið skotinn. Það var bara verið að koma í veg fyrir slys á fólki eða smit. Rétt move, og svo viti þið ekkert hvort að hann hefði borðið eitthvað með sér hingað til lands.
User avatar
Brútus
Getawaybílstjóri
 
Posts: 930
Joined: Sat 25. Aug 2007 02:56

Postby Kristjan » Tue 03. Jun 2008 17:13

Mér fannst þeir full fljótir á sér að drepa dýrið, en þetta er jú hættulegt rándýr sem hefði ekki verið sniðugt að missa í þokuna.
Enginn BMW
User avatar
Kristjan
Formúlubílstjóri
 
Posts: 8507
Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Location: 101 RVK

Postby Eggert » Tue 03. Jun 2008 17:35

Já, mér finnst alveg fáránlegt að það hafi ekki einu sinni verið reynt að halda honum á lífi. Það þarf ekki að vera til bók um hvernig eigi að handsama glorsoltinn og máttvana björn, eins og ráðherrann virtist halda. Hefði ekki verið nóg að byrja á að hrúga einhverju kjöti þarna með deyfilyfjum fyrir greyið, og henda honum svo í einhverja vel valda hestakerru (steeeeeinsofandi) meðan það er hringt í dýragarða erlendis til að forvitnast um hvernig sé best að bregðast við og höndla málið.

Ég er búinn að vera pirraður yfir þessu í allan dag. Sorgardagur... :evil:
E53 X5 4.4i
User avatar
Eggert
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3878
Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Location: Mosó city

Postby Kull » Tue 03. Jun 2008 17:45

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/20 ... naesta_hv/

Aðstæður kröfðust þess að dýrið yrði fellt.
Aðgerð sem þessi er afar flókin og krefst þess að til verksins sé notuð þyrla og sérþjálfað starfsfólk. Ef svæfing heppnast þarf að flytja dýrið í neti frá þeim stað þar sem það liggur og í sérhannað búr. Flutningstími má ekki vera langur vegna þess að áhrif svæfingar fjara út og að auki geta flutningar reynst dýrinu lífshættulegir. Hvorki tækni- né sérfræðiþekking á slíkri aðgerð er fyrir hendi hér á landi.


Mikið til í þessu, hægara sagt en gert að svæfa svona dýr og flytja án áhættu. Lítið annað að gera eins og staðan var en að fella dýrið, ekki hefði verið gott að týna því í þokunni og frétta næst af einhverjum látnum fjallagarpinum eða álíka.

Samt frekar lélegt að það sé ekki til nein áætlun um hvað eigi að gera í svona málum, það er klárlega eitthvað sem umhverfisráðuneytið þarf að laga og verður vonandi gert sem fyrst.
C32 AMG Carlsson
Toyota Land Cruiser 80
Subaru Impreza GX - beater!
User avatar
Kull
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1505
Joined: Fri 30. Aug 2002 22:04
Location: Seltjarnarnes

Postby Steinieini » Tue 03. Jun 2008 17:54

Image
E39 530D ///M Sport
User avatar
Steinieini
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1905
Joined: Mon 22. Nov 2004 13:31
Location: RVK

Postby E55FFFan » Tue 03. Jun 2008 17:59

Steinieini wrote:Image


það þurfti alveg 5 menn til þess að fella einn ísbjörn niður, hálfvitar sem fá aldrei færi
E55FFFan
Getawaybílstjóri
 
Posts: 559
Joined: Tue 09. Oct 2007 20:23
Location: Halfpriceland

Next

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 74 guests