Lindemann wrote:
IMO væri betri kostur að loka tjaldsvæðum en að mismuna fólki.
Eitthvað væri sagt ef bæjarstjórn hefði tilkynnt að í sumar yrði svertingjum, gyðingum og hommum meinaður aðgangur að tjaldsvæðinu.........
Ég meina...
ALLT Í GÓÐU GRÍNI, ÉG ER EKKI RASISTIbara til að fyrirbyggja allan misskilningsh4rk wrote:
Hefur einhver ykkar farið á Írska daga núna síðustu ár???
Það er ekki furða þó að það sé komið 23+ á tjaldsvæðin þarna.
Í fyrrasumar var bara rugl með fólk þarna geðveikt mikið af fólki og mjög stór hluti af því bara að leita sér af slagsmálum
Ég hef farið á Írska daga og Bíladaga seinustu ár, og meirihlutinn af þessu fólki sem ég hef tekið eftir að er með áberandi mikil vandræði, er undir 18 ára aldri, stundum milli 18 og tvítugs.
Ég myndi vilja sjá 18+ eða 20+ til reynslu og það yrði þá
farið eftir því!
Á flestum svona skemmtunum þar sem er t.d. 18+, þá hef ég aldrei séð gæsluna fara eftir því
Held að 23 sé bara nógu hár aldur þannig að þessir krakkar nenna ekki að leggja á sig að keyra ....alla leið.... á Akranes til að verða svo fyrir vonbrigðum. Samt spurning hvort það verður eitthvað stíft tekið á þessu?
En aftur á móti þá vill Akraneskaupstaður væntanlega bara hafa þetta sem fjölskylduskemmtun, sem er alveg besta mál! Fínt að hafa sem mest af þeim.
Mæta bara vonandi fleiri á Þjóðhátíð fyrir vikið
