Loksins tók einhver við sér ... maður er að reyna að varpa sprengju svona í svefngalsanum á slaufunni og ekkert gerist.....
Það má alveg kalla þetta grunnskólahúmor, þetta er lítið annað

Eins og áður sagði, það er alveg búið að tala nóg um þetta og þessi þráður nú ekki skrifaður í mikilli meiningu um þetta.
EN, það sem ég vildi nú meira koma að í framhaldinu....
Þetta ástand er frekar fúlt fyrir okkur heima. Við erum að tala um að allt hefur hækkað um 30% ef maður fer út til Evrópu! Bensínið í 180 kalli og bara dýrt að vera þarna.
Það er ekki nóg með að það hafi allt hækkað heima! Matur, bensín, lánin.... það er ekki hægt að fara út með góðri samvisku lengur.
Þó ég hafi nú verið að skjóta á þessa lánamenningu heima varðandi bílana þá kemur þetta sér illa fyrir alla heima. Ég er sko ekkert par kátur með ástandið á klakanum. Ég er ekki að óska eftir neinum ragnarrökum. Þetta ástand kostaði mig svona 10% í launahækkun sem maður hefði væntanlega fengið ef ástandið væri ekki svona. Maður hefur setið eftir síðustu ár á meðan aðrar stéttir hafa skriðið upp um tugi prósenta og svo þegar kemur að samningum þá er allt komið í vol og búið að skrúfa fyrir alla krana! Svo ætlar maður að fara að byggja og það er skrúfað fyrir alla krana þar líka..... Síðan skellir maður sér út á slaufuna og svíður í augun þegar maður sér reikningana þarna úti og margfaldar með 122.
Það sem ég er svona meira að spá í, stoppar þetta ekki alla sem hafa verið að hugsa sér að fara í Eurotour út með bíl. Skella sér á Slaufuna og rúnta í kring? þetta var svolítið að gerast síðustu 2 ár eða svo, en maður hefur ekki heyrt um að einhver sé á leiðinni út núna í ár.
Ég persónulega var vel heitur fyrir að fara með bíl út "a la Þórður" (ekki alveg jafn hardcore), en maður hefur lagt slíkt á hilluna í bili. Það er erfitt að réttlæta að fara út í svoleiðis eins og staðan er í dag.
Er ástandið almennt svona eða eru menn eins og Alpina og Ofur-Þórður hérna sem eru samt að fara út og vera TEAM-BE!