Er hægt að opna skottið á E30 Cabrio öðrivísi en með lykli ?

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Er hægt að opna skottið á E30 Cabrio öðrivísi en með lykli ?

Postby ömmudriver » Mon 12. May 2008 19:22

Sælar,

mér tókst að læsa skottinu á bílnum áðan þegar ég var að fikta í læsingunni innan frá án þess að taka eftir því og svo lokaði ég skottinu. En núna kemst ég ekki inn í skottið þar sem að lykillinn gengur ekki að þessari læsingu og það eru tvær perur sprungnar í afturljósunum en ég kemst ekki í skottið til þess að skipta um þær :bawl: :evil:

Spurningin er sú: Kemst ég öðrivísi inní skottið á bílnum mínum en með því að bora út læsinguna á skottlokinu ???

Mbk,
Nútíðin:
E34 Touring '93 > R.I.P.
E34 530iT '95

Þátíðin:
E32 735i '89 ND-020
E30 325iC '89 AN-309
E30 318i '88 JS-554
E34 525iA '94 OZ-390
E28 518i '87 IT- 629
E46 318i '00 TB-590
ömmudriver
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5955
Joined: Mon 26. Sep 2005 00:12
Location: Litla Ameríka

Postby ömmudriver » Mon 12. May 2008 19:37

Búinn að redda þessu 8)
Nútíðin:
E34 Touring '93 > R.I.P.
E34 530iT '95

Þátíðin:
E32 735i '89 ND-020
E30 325iC '89 AN-309
E30 318i '88 JS-554
E34 525iA '94 OZ-390
E28 518i '87 IT- 629
E46 318i '00 TB-590
ömmudriver
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5955
Joined: Mon 26. Sep 2005 00:12
Location: Litla Ameríka

Postby Stebbimj » Mon 12. May 2008 19:52

ömmudriver wrote:Búinn að redda þessu 8)

snillingur :wink:
User avatar
Stebbimj
Kassabílstjóri
 
Posts: 184
Joined: Sun 17. Feb 2008 11:24
Location: Keflavík

Postby Einarsss » Mon 12. May 2008 22:45

Hvernig?


deila þekkingunni eða kjána mistökunum með okkur :)
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Postby ömmudriver » Tue 13. May 2008 00:27

einarsss wrote:Hvernig?


deila þekkingunni eða kjána mistökunum með okkur :)


Ég hef s.s maargoft reynt að læsa skottinu án árangurs þangað til í dag þegar að ég reif samlæsingar mótorinn út til þess að athuga hvort að hann væri fastur og þar af leiðandi valdur þess að ekki væri hægt að hreyfa við læsingunni. En þegar að ég setti mótorinn aftur í hef ég annaðhvort togað eða ýtt pinnanum í læsingunni inn og þar af leiðandi læst skottinu og svo lokaði ég því.

En þegar ég ætlaði svo að skipta um perur í afturljósunum þá komst ég að því að skottið var læst :x Þannig að ég fór inná realoem.com en fann ekkert þar sem gat hjálpað mér og því bjó ég til þennan þráð. En ég var á hraðferð með bílinn í bæinn til kelirínu og gat ómögulega keyrt bílinn í bæinn með hvorki stefnu- né stöðuljós að aftan og því VARÐ ég að opna skottið. Ég náði því í gúmmí hamar, setti lykilinn í skrána og barði svo temmilega á enda lykilsins og voila ég gat snúið lyklinum hálfhring, því næst drekkti ég skráni í WD-40 og eftir það gat ég læst og opnað af vild :D


Til gamans má geta að það var 5W pera í vinstra stöðuljósinu en 21W pera í hægra stöðuljósinu að aftan sem að olli því að ljósin lýstu misvel, en það á vera 10W pera og það stendur meira að segja við perustæðin :shock:
Nútíðin:
E34 Touring '93 > R.I.P.
E34 530iT '95

Þátíðin:
E32 735i '89 ND-020
E30 325iC '89 AN-309
E30 318i '88 JS-554
E34 525iA '94 OZ-390
E28 518i '87 IT- 629
E46 318i '00 TB-590
ömmudriver
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5955
Joined: Mon 26. Sep 2005 00:12
Location: Litla Ameríka


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 31 guests