Blessaðir verið þið spjallmeðlimir, ég er að spá í kaupum á bíl, fyrsta bílnum mínum og þar sem frændi minn kom mér upp á BMW langar mig virkilega að fyrsti bílinn verði góður og þar kemur að ykkur.
Hvað er besti bílinn til þess að kaupa sér fyrst, hann frændi minn sem er mikill bílakall sagði til dæmis við mig að kaupa mér aldrei þrist vegna þess að þeir bila svo mikið og allt þar fram eftir götunni, en ég er ekki að kaupa það.
Þannig að ég spyr ykkur, hvað mynduð þið mæla með svona fyrst?
Með von um skjót svör, Láki.




