Drengir (og stúlkur) þetta er rosalega einfalt.
Ef maður hefur ekkert að segja þá segir maður ekkert.
Það er ekki nauðsynlegt að svara öllum þráðum.
Ef það eina sem ykkur dettur í hug er eitthvað skítkast þá er almennur vilji fyrir því að þið farið annað.
Það er oft gott að orða hlutina mýkra en maður myndi almennt gera í samtali milli vina í persónu því netið kemur kaldhæðni eða öðru slíku illa til skila.
Gamalt en sígilt.
Quote:
Vits er þörf
þeim er víða ratar.
Dælt er heima hvað.
Að augabragði verður
sá er ekki kann
og með snotrum situr.
Að hyggjandi sinni
skyli-t maður hræsinn vera,
heldur gætinn að geði.
Þá er horskur og þögull
kemur heimisgarða til,
sjaldan verður víti vörum.
Því að óbrigðra vin
fær maður aldregi
Ósnotur maður
hyggur sér alla vera
viðhlæjendur vini.
Hitt-ki hann finnur,
þótt þeir um hann fár lesi,
ef hann með snotrum situr.
Ósnotur maður
hyggur sér alla vera
viðhlæjendur vini.
Þá það finnur
er að þingi kemur
að hann á formælendur fáa.
Ósnotur maður
þykist allt vita,
ef hann á sér í vá veru.
Hitt-ki hann veit
hvað hann skal við kveða,
ef hans freista firar.
Ósnotur maður
er með aldir kemur,
það er best að hann þegi.
Engi það veit
að hann ekki kann,
nema hann mæli til margt.
Veit-a maður
hinn er vætki veit,
þótt hann mæli til margt.
Fróður sá þykist
er fregna kann
og segja ið sama.
Eyvitu leyna
megu ýta synir
því er gengur um guma.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama.
En orðstír
deyr aldregi
hveim er sér góðan getur.