Trommara brandarar

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Trommara brandarar

Postby Bjarkih » Wed 07. May 2008 20:27

Rakst á þessa snilldarbrandara sem voru með því fyrsta sem ég náði í á netinu fyrir ca 14-15 árum síðan þegar maður var að byrja að skoða þetta allt. Góðar mynningar.

Hvað kallarðu trommuleikara með greindarvísitöluna 56?
Vel gefinn.
--
Afhverju þurfa hljómsveitir rótara?
Til að hafa einhvern til að þýða það sem að trommuleikarinn segir.
--
Hvað þarf marga trommuleikara til að skrúfa í ljósaperu?
Bara einn, svo lengi sem rótarinn nær í stigann .. setur hann upp ... og kemur perunni fyrir í perustæðinu.
--
Óli Hólm trommari, var orðinn þreyttur á því hversu lítið er alltaf gert úr trommuleikurum, þannig að hann ákvað að fara inn í Rín og skipta um hljóðfæri.
"Ég ætla að fá rauða trompetinn þarna .... og láttu mig líka fá harmonikkuna.", segir Óli við Magga Eiríks.
"Óli minn ... þú mátt fá slökkvitækið, en þú lætur ofninn í friði"!!
--
Hver er besta leiðin til að rugla trommuleikara þegar hann er að spila?
Þú setur nótnablað fyrir framan hann.
En hvernig er best að stöðva trommuleikara þegar hann er að spila?
Þú skrifar einhverjar nótur inná nótnablaðið.
--
Ingó "grís" labbar inn í búð.
"Ég ætla að fá einn svona Marshall Hiwatt AC30 amplificatior og einn Gobson StratoBlaster gítar með Fried Rose tremóló?"
"Bíddu við ... þú ert trommuleikari ... er það ekki"
"Duh, jááá .. hvernig vissirðu það?"
"Þetta er ferðaskrifstofa"
--
Hvað þarf marga trommuleikara til að skipta um ljósaperu?
Bara einn, en aðeins eftir að hann spyr .. "Afhverju?"
--
Ef að það lægi þúsundkall á gólfinu, og í kringum hann stæðu Jólasveinninn, álfur, góður trommari og lélegur trommari, hver mundi þá ná þúsundkallinum?
Lélegi trommarinnn, þar sem hinir þrír eru ekki til.
--
Hvað gerist ef þú blandar saman trommuleikara og górillu?
Mjög heimska górillu (ta-ta-búm-splassshh!)
--
Hversu marga trommuleikara þarf til að skrúfa í ljósaperu?
Engann .... það er líka búið að búa til vél sem gerir það.
--
Afhverju er trommuheili betri en trommuleikari?
Hann heldur takti og sefur ekki hjá kærustunni þinni.
--
Hversu marga trommuleikara þarf til að skúfa í ljósaperu?
Fimm. Einn til að skrúfa í peruna og fjóra til að tala um hve miklu betur Vinnie Caliutta hefði gert þetta!!!!!!!
--
Afhverju eru trommuleikarar með einni fleiri heilafrumu en hestar?
Svo þeir kú** ekki á götuna í skrúðgöngunni.
--
Hefurðu heyrt um trommuleikarann sem kláraði menntaskólann?
Ekki ég heldur (ta-ta-ta-búmm-búmm-splashhh!)
--
Afhverju er pásurnar hjá hljómsveitum aldrei lengri en 20 mínútur?
Svo það þurfi ekki að þjálfa trommarann upp á nýtt.
--
Afhverju setja gítarleikarar trommukjuða í mælaborðið á bílnum sínum?
Svo þeir geti lagt í stæði fyrir fatlaða.
--
Jói Hjörleifs sagði við mömmu sína: "Ég ætla að verða trommuleikari þegar ég verð fullorðinn."
Mamma: "En Jói minn, þú getur ekki orðið bæði."
--
Hvað kallarðu týpuna sem hangir alltaf í kringum hljómsveitir?
Trommuleikara.
--
Hvernig veistu þegar trommuleikari ber að dyrum hjá þér?
Hann missir taktinn á fjórða högginu.
--
Hvernig veistu þegar að trommuleikari er fyrir utan heima hjá þér?
Hann veit ekki hvenær hann á að koma inn.
--
Hefurðu heyrt um gítarleikarann sem var á leiðinni á gig og læsti lyklana inn í bílnum. Það tók hann tvo tíma að ná trommuleikaranum út.
--
Afhverju er trommusóló eins og hnerri?
Þú veist að það er á leiðinni en það er ekkert sem þú getur gert við því.
--
Hvað er það síðasta sem að trommuleikari segir í hljómsveit?
"Hei strákar ... ég er með hugmynd?"
--
Hvað sagði trommuleikarinn þegar hann fékk fyrsta fasta starfið sitt?
"Má bjóða þér franskar með þessu?"
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --
User avatar
Bjarkih
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3154
Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Location: Akureyri 603

Postby Schulii » Wed 07. May 2008 21:03

:lol: :lol:

Hver voru síðustu orð trommuleikarans áður en hann hætti í hljókmsveitinni?
"Strákar, eigum við ekki að taka mitt lag núna?"
BMW 520d E61
Schulii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2028
Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Location: Reykjavík

Postby fart » Wed 07. May 2008 21:46

Hey.. ég spila á trommur :o
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby UnnarÓ » Wed 07. May 2008 21:51

:evil: :cry:
UnnarÓ
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 444
Joined: Wed 21. Feb 2007 22:15
Location: RVK

Postby BirkirB » Wed 07. May 2008 22:15

[-( [-X

Trommarabrandarar eru ekkert fyndnir...
E39M5
I4M50
User avatar
BirkirB
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1838
Joined: Fri 20. Jul 2007 13:51
Location: Rkv

Postby /ng/ » Wed 07. May 2008 23:33

haha snilld
Langar í E30
/ng/
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 4
Joined: Fri 14. Mar 2008 16:35

Postby Schulii » Thu 08. May 2008 00:04

ég spila á trommur líka en bara fyndið :lol:
BMW 520d E61
Schulii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2028
Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Location: Reykjavík

Postby birkire » Thu 08. May 2008 00:33

Haha, snilld ef maður hefur haft náin samstörf við nokkra..
vti
birkire
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 2518
Joined: Fri 30. Nov 2007 12:46
Location: sniffa lím

Postby ömmudriver » Thu 08. May 2008 01:20

Þetta eru SNILLDAR brandarar :lol: :lol:
Nútíðin:
E34 Touring '93 > R.I.P.
E34 530iT '95

Þátíðin:
E32 735i '89 ND-020
E30 325iC '89 AN-309
E30 318i '88 JS-554
E34 525iA '94 OZ-390
E28 518i '87 IT- 629
E46 318i '00 TB-590
ömmudriver
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5955
Joined: Mon 26. Sep 2005 00:12
Location: Litla Ameríka

Postby Fríða María » Thu 08. May 2008 01:57

hahahaha bara snilld :lol:
Fríða María
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 44
Joined: Sun 03. Feb 2008 19:57
Location: Austfirðir

Postby pallorri » Thu 08. May 2008 05:56

Snilldar brandarar :lol:

Hvernig veistu þegar trommuleikari ber að dyrum hjá þér?
Hann missir taktinn á fjórða högginu.
pallorri
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1452
Joined: Wed 13. Apr 2005 18:27

Postby maxel » Thu 08. May 2008 09:37

birkire wrote:Haha, snilld ef maður hefur haft náin samstörf við nokkra..

:hmm:
maxel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5844
Joined: Thu 01. Mar 2007 18:45

Postby Schulii » Thu 08. May 2008 10:41

maxel wrote:
birkire wrote:Haha, snilld ef maður hefur haft náin samstörf við nokkra..

:hmm:


Leyfðu mér að útskýra. Samstarf er að vinna með einhverjum. Í þessu tilfelli er hann líklega að meina að hann hafi verið í hljómsveitum þar sem hann hefur "unnið" með trommuleikurum að gerð eða flutnings tónlistar.
BMW 520d E61
Schulii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2028
Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Location: Reykjavík

Postby maxel » Thu 08. May 2008 11:57

Schulii wrote:
maxel wrote:
birkire wrote:Haha, snilld ef maður hefur haft náin samstörf við nokkra..

:hmm:


Leyfðu mér að útskýra. Samstarf er að vinna með einhverjum. Í þessu tilfelli er hann líklega að meina að hann hafi verið í hljómsveitum þar sem hann hefur "unnið" með trommuleikurum að gerð eða flutnings tónlistar.

Uu.. i knew dat, en mér langar að heyra meira um "náið samband við trommara" :lol:
maxel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5844
Joined: Thu 01. Mar 2007 18:45


Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 39 guests