Sælir kæru limir,
Um aðra helgi, föstudaginn 16. og laugardaginn 17. maí, verður fyrsta umferð Íslandsmótsins í rallakstri haldin. Við erum að reyna að fá leyfi fyrir innanbæjarleið í Hafnarfirði á föstudagskvöldinu (16. maí) en til að það gangi þarf að minnsta kosti 25 manns í gæslu ! Þeir sem hafa áhuga á að hjálpa til geta sent fullt nafn, kennitölu og símanúmer á netfangið
doddi@varahlutir.is eða til mín með ep.
Leiðin verður einhvernvegin svona:
Kænan er við höfnina í Hafnarfirði þar sem Orkan er með bensínstöð.
Sjálfboðavinna sem þessi er besta leiðin til að kynnast mótorsporti frá fyrstu hendi. Þetta er ekki flókin vinna; ég var t.d. í gæslu á driftkeppninni í hitteðfyrra og mér leið eins og áhorfanda nema ég fékk að standa nær.
Hafið endilega samband. Við þurfum 25-30 manns til að fá leyfi frá lögreglu.