HPH wrote:er ég eini sem fynst skrítið að fasteigna og bíla verð sé að hækka núna á fullu um mörg prósent.
Mér fynst að verðið ætti að lækka frekar vegna lítillri eftir spurn og of-framboði?
Fasteignaverð er að lækka. Fasteignasalar eru nýbyrjaðir að verðleggja eignir með sölu í huga og allt önnur verð eru farin að sjást. Verulega lækkanir á fermetra verði. Það er hinsvegar lítið sem selst, einfaldlega vegna þess að verð er ennþá of hátt og aðgangur að lánum er engin.
Fyrstu fasteignasalarnir eru búnir að kveikja á því að það er ekki lengur seljendamarkaður heldur kaupendamarkaður. Þegar restin áttar sig þá breytast verðin og þeir síðustu til að kveikja á þessu fara á hausinn. Þetta gerðist í fyrra hér í DK og hér hefur fasteignaverð lækkað um 20-30% á einu ári (án þess að það þyki einhver stórtíðindi reyndar).
Bílarnir hækka auðvitað út af gengi sem er markmiðið með þessu öllu saman - draga úr viðskiptahalla. Hinsvegar er alveg glórulaust að hækka verð á notuðum bílum en þó gera umboðin það.
Þetta skapar dálítið furðulegan markað og kannski var Brynjar að fiska eftir því. Umboðsbílar (notaðir) verða því ENN dýrari en þeir voru á meðan bílar sem seldir eru á almennum markaði lækka enn frekar. Fólk neyðist til að borga meira með bílunum sem eru með mest áhvílandi, uppboðum fjölgar og verðin eiga því eftir að verða eitthvað furðuleg.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road